Tag: latvia

  • Þegar börnin þín vakna kl. 7 eins og þau hafi fengið fjórfaldan espresso með fullt af sykri og smá amfetamín með

  • Stefnir í kalda nótt

    PS: heitir þetta líka dalalæða ef það er enginn dalur í næsta nágrenni?

  • Peppa horfir yfir akur í kvöldsólinni

  • When in sveitin…


    Þú veist að þú ert miðaldra þegar tilhugsunin um „hinn bjórinn“ er mjög spennandi


    Svo manstu að þú átt nokkra dropa af Flóka og þér líður eins og þú sért 18 aftur!

  • Á ströndinni

    Ljúfa lífið á ströndinni í Jurkalne, Lettlandi

  • Svipaðist um eftir Rauðhettu, en hún var sennilega búin að rekast á úlfinn

  • Á ströndinni

  • George og þvottekta kúrekakaffi í sveitinni


    Telma, 5 ára, sá myndina og hugsar upphátt: „Af hverju var pabbi að taka mynd af George og kaffi?“

  • Heimili okkar næstu vikuna tvær vikur


    Uppfært:

    (fann ekki þetta videó til að setja inn aftur 🙁 )

    Uppfært: Heyrum reglulega í gaukum og rétt í þessu flugu tvær gargandi grátrönur yfir

  • Fjölbýlishús

  • Á ströndinni

  • Í Lettlandi

    Laugardagur. Síminn hringir. Ance. Nema þetta var ekki Ance. Þetta var…

    Telma: „Hæ pabbi! Hvað ertu að gera? Ertu í vinnunni?“

    Pabbi: „Nei, engin vinna í dag, ég var að koma heim úr búð! Hvað ert þú að gera?“

    T: „Ég er að gera leikrit í Lettlandi. Sandra vill ekki horfa. Mamma er að lesa bók í Lettlandi. Ég var að hjóla með engin hjálpardekk! Opis keypti nýtt hjól í Lettlandi“

    P: „Mér heyrist vera gaman … í Lettlandi“

    T: *fliss* „Já! Í kvöld erum við að fara í bað í Lettlandi“

    Ance (í bakgrunni): „Telma, hvað ertu að gera?“

    T: „Ég er í símanum í Lettlandi!“

    A: „Ertu í símanum í alvörunni? Við hvern ertu að tala? Ertu nokkuð að stelast til að hringja í pabba til Íslands?“