Tag: jól

  • Piparkökuhús

    Þegar börnin þín eiga tvö af þremur flottustu piparkökuhúsunum á föndurkvöldinu í skólanum ??

  • 17 mínútur

    17 mínútur liðnar af 2022:

    Telma, 9 ára: „Af hverju líður mér eins og það sé ennþá 2021?“

  • Ég elska alla

    Úti að labba með Húgó í storminum í gærkvöldi: „Pabbi, ég elska alla í heiminum! Líka fólkin sem ég hef aldrei séð!“

  • Pa: „All I want for Christmas is Pú“

  • Grýla

    Skoðum bók þar sem Grýla og jólasveinarnir koma fyrir

    Albert *starir á mynd af Grýlu*: ?„Var Grýla einusinni barn?“

    Pabbi: ?„Já! Það hlýtur að vera!“

    A: ? „Og … borðaði hún þá börn?“ ?

  • Áramótaskaup

    Börnin horfa á áramótaskaupið 2020 þriðja sinni, nú með gesti: Samkjafta ekki hvert ofan í annað: „Já, þetta! ÉG EEELSKA ÞETTA!!?!“ lýsa svo því sem er alveg að fara að gerast í smáatriðum. „Svo segir einhver „af hverju ertu að hreyfa munninn!“ *fliss*“


    „SLEIKJA Á MÉR PÚNGINN!“


    „Veistu hvað dikkpikk er?“

  • Ó, tyggjókall!

    Besta atriðið úr vel lukkuðu Krakkaskaupi 2020

  • Flottasta bolinn

    Fullorðnir eru voða uppteknir í eldhúsinu og stóra stundin að renna upp

    Pabbi: *kíkir fram og sér að sonurinn er í buxum, sokkum og skítugum bol* „Albert, geturðu farið sjálfur upp og fundið flottasta bolinn og klætt þig í hann?“

    Albert, uppi: „Þetta eru sko flottustu nærbuxurnar mínar!“

    Pa: Hmm?


    Albert kemur svo niður, í hvítum, einlitum hlírabol og bleikum boxer naríum sem hann erfði frá systur sinni, og engu öðru*

  • Ahhhh jólin! Skemmtilegasti tími ársins, þegar maður fær hlýju í hjartað við að renna yfir jólakveðjurnar á fb, grandskoðar allar fallegu myndirnar, telur fullorðna fólkið og reiknar út hverjir hafi skilið á árinu

  • Albert: „Hvert erum við að fara?“

    Pabbi: „Í kirkjugarðinn, manstu þar sem amma er ofan í jörðinni“

    A: „Ó já, þar sem amma hans afa var að grafa holu og fór ofaní holuna *leikur að leggjast ofan í holu* og dáaði og setti svo lokið yfir!“

  • Á leiðinni heim úr leikskólanum

    Albert: „Það var bíó í dag!“

    Pabbi: „Frábært! Hvað voruð þið að horfa á?“

    A: „Það var grænn jólasveinn!“