Tag: íslenska

  • S/O á svartklædda manninn í duftkirkjugarðinum sem veifaði svartri uppspenntri regnhlíf ógnandi upp í loftið.

    Ég skildi ekkert …fyrr en ég sá grágæsirnar tvær sem hann miðaði regnhlífinni á og stýrði fimlega um himininn

  • Þegar hann er ekki í Among us

    When not playing Among us

  • Bangsi litli

    Lesum í gærkvöldi

    Albert opnar bókina, les, hægt: „Hér … sjáið … þið … Bangsa“

    A: *lítur á pabba* „Af hverju stendur ekki Einu sinni?“

  • AB

    Löngu eftir að ég gleymi nafninu mínu mun ég muldra lactobacillus acidophilus, bifidobacterium bifidum

  • Ég veit um eitt lag

    Pabbi: *kveikir á Spotify og ætlar að spila tónlistina úr Kardemommubænum fyrir krakkana*

    Albert: „Pabbi, ég veit um eitt lag!“


    Sólblóm – Bríet
  • Stimpill

    Pabbi: „Fékkstu stimpil í fimleikum?“

    Albert: „Nei“

    P: „Af hverju?“

    A: „Ég var að meiða“

    P: „Af hverju varstu að meiða?“

    A: „Ég vildi ekki fá stimpil“


    P: „En hvern varstu að meiða?“

    A: „Má ekki segja“

    P: „Nú, af hverju ekki?“

    A: „Útaf Covid“

  • Breyttu lagi með einum staf

    Veðurfræðingar fljúga

    Pea of love

    Corn in the USA

    Kvel ég í draumahöll

    Hamingjan er héri

    Fjöllin hafa bakað

    Sjón er kominn heim

    Bor í Vaglaskógi

    Veðurfræðingar sjúga

  • Tólfti

    Albert í morgun: „Pabbi, er tólfti í dag?“

    Pabbi: „Ööö, é veitiggi…“ *athugar* „Já það er tólfti! Hvernig vissirðu?“

    A, ekki orðinn fimm ára: „Það var ellefti í gær!“

  • #metoo

    Hef átt erfitt með að koma hugsunum mínum í orð, svo ég geri orð Starra á FB að mínum

  • Hérna… hversu algeng aukaverkun af AstraZeneca er að heilinn í manni skipti óumbeðinn yfir í sumartíma, og eru þess mörg dæmi að aukaverkun komi fram áður en þú færð sprautuna?

  • Klukkan

    Þegar þú ert búinn að gera hafragraut og klæða þig til að fara út með hundinn þegar konan þín kemur hálfsofandi og bendir þér á að klukkan er sex en ekki sjö…