Allt að verða vitlaust á nýja veitingastaðnum mínum, Klemmubrauð & Co

Albert: „Pabbi ég veit hvað er bannað að segja!“
Pabbi: „Nú, hvað er bannað að segja?“
A: „Bitsj“
Albert: „Mig langar að setja lagið mitt á TikkTokk“
Pabbi: „Já? Hvaða lag?“
A: „…pabbi, það er fokk í laginu…“
A: *raular* „Ég var með fokk…“
P: hmmm?
A: „Það er rosa mikið fokk í laginu. Það er 190 fokk. Ég má ekki syngja það. Ef ég syng það kemur löggan“
Við berum í lækinn þó bakkafullur sé. Allir búnir að sjá miklu betri myndir af eldgosinu í Geldingadölum
/everyone who can understand the text above is drowning in much better pictures, but I’m still adding mine because I’m pretty pleased with them













Mamma: „Hringdirðu til að biðja þau að senda stelpurnar heim?“
Pabbi: „Já, Steingrímur svaraði og hann ætlar að senda stelpurnar heim“
A: „Var hann að stinga?“
P:
„Stinga?“
A: „Var Stinggrímur að stinga?“