Sögumaður: Hann hætti ekki
Tag: íslenska
-
Hætta að hoppa?
-
Hálf milljón
Ég setti mér háleitt markmið í desember: Hálf milljón skref í skrefakeppni. Það tókst og nú er ég stoltur og lúinn, búinn
Nú er hafinn skrefanúar og ég er með eitt markmið: Missa streakið að ganga 10 þúsund skref á dag.
Þökk sé veðrinu gæti það jafnvel náðst í dag335.692 skref í desember Er að passa mig að enda ekki með áráttuhegðun
-
17 mínútur
17 mínútur liðnar af 2022:
Telma, 9 ára: „Af hverju líður mér eins og það sé ennþá 2021?“
-
Ég elska alla
Úti að labba með Húgó í storminum í gærkvöldi: „Pabbi, ég elska alla í heiminum! Líka fólkin sem ég hef aldrei séð!“
-
Lokametrarnir
Þegar það er þriggja stiga frost og 25 m/s í hviðum en þú ert á lokametrunum í skrefakeppni
Það er sko hreint ekkert grín að vera svona þrjóskur
-
Albert les: „… þau veltu fyrir sér kringum…“
Pabbi leiðréttir: „Hvernig!“
A: *lítur skilningsvana á pabba … teiknar hring í loftinu með fingrinum*
P: „Nei! …í bókinni!“ *bendir* „Það stendur Hvernig í bókinni!“
„þau veltu fyrir sér hvernig þau ættu að ná Emil úr súpuskálinni“ -
Pú
Pa: „All I want for Christmas is Pú“
-
Keppni
Ance: „Hvað segirðu, er einhver keppni?“
Ég: „Já, skrefakeppni í vinnunni – sá sem tekur flest skref í desember vinnur!“
A: „Eru verðlaun?“
É: „Já, en ég veit ekki hvað“
A: „Og þessvegna kemurðu aldrei heim – ert allan daginn úti að labba?“
Ance:
„Hmmm … kannski ætti ég að vera með þrifakeppni á heimilinu? Sá sem ryksugar mest og skúrar vinnur“
-
Galdrakarl
Í síðustu viku fengu krakkarnir á leikskólanum að sjá sirkus, m.a. töframanninn Daníel. Í gærkvöldi:
Albert: „Komdu, ég ætla að sýna þér eitt galdr“
Pabbi: *kemur*
A: *fer að glugga sem snýr í austur* „Sjáðu, þarna er tunglið“
P: „Flott!“
A: *ýtir pabba frá glugganum* „Abrakadabra simmsalabimm!“
A: *dregur pabba að glugga sem snýr í norður og bendir út* „og núna er tunglið þarna!“
-
Listar
Albert, heima veikur: „Hvað ertu að gera?“
Pabbi: „Skrifa lista yfir ýmislegt sem þarf að gera“
A:
„Ég ætla líka að skrifa lista yfir það sem þarf að gera. Og þú mátt ekki segja nei!“
BORÐA ÍS …búinn að finna smugu í reglunum hélt hann svo áfram…
-
Hugrún atferlismeðferð?
-
Jújú, ég ældi smávegis í nótt og hélt ég væri að deyja, en ég er ekkert ef ég er ekki einþykkur, þver, þrjóskur. Fer ekki að láta einhver smáatriði koma í veg fyrir að ég nái markmiðinu í miðri skrefakeppni í vinnunni
Ég náði 10 þúsund skrefum þó ég væri veikur