Jújú, ég ældi smávegis í nótt og hélt ég væri að deyja, en ég er ekkert ef ég er ekki einþykkur, þver, þrjóskur. Fer ekki að láta einhver smáatriði koma í veg fyrir að ég nái markmiðinu í miðri skrefakeppni í vinnunni

Fyrir tveimur vikum greindist Albert, fimm ára, með Covid.
Hefði þetta gerst fyrir ári hefði ég lítið sem ekkert sofið fyrr en fjölskyldan væri laus úr sóttkví og einangrun – fastur í hugsunum um örkuml, dauða og ömurð
Núna: Fökk! ![]()
Ef ég lendi í einangrun missi ég streakið í að ganga 10 þúsund skref á dag
PS: Hann varð ekki veikur og sýndi aldrei nein einkenni. Ekkert okkar smitaðist
Ó mig auman! Ég verð fyrir aðkasti sem jaðrar við einelti á mínu eigin heimili!
Mér er gefið að sök að hafa sungið þetta og látið alla fjölskylduna fá það á heilann
Þegar þú færð áminningu um að þú sért að fara í leikhús eftir 48 mín og færð næstum hjartaáfall af því þú býrð 30km frá leikhúsinu og þú skiptir um föt í ofboði og hleypur út í bíl og brunar af stað og ert kominn hálfa leið þegar leikhúsfélagarnir senda skilaboð og spyrja hvort þú hafir ekki örugglega farið í hraðpróf og þú keyrir út í kant og grætur ![]()
![]()
![]()
Þegar öll fjölskyldan losnar úr 10 daga sóttkví og einangrun má draga fram sparistellið ![]()

Veit einhver um búð þar sem gæti verið hægt að fá allt á þessum lista?
Því annars fækkar á heimilinu um einn fimm ára ![]()



Veit einhver um búð þar sem gæti verið hægt að fá allt á þessum lista?
— siggi mús (@siggimus) November 21, 2021
Því annars fækkar á heimilinu um einn fimm ára ? #pabbatwitter pic.twitter.com/gWjSJCSvkM
Í umræðunni kom m.a. fram:
Þetta eru víst kvattúordesilljón peningar – í óskilgreindum gjaldmiðli – eða silljón killjón filljón peningar – (fer eftir því hvern þú spyrð).
Skv. gúggli frænda er samanlagður peningur í veröldinni víst ekki nema 670 trilljónir ISK (e. quintillion (670 með 18 núllum)), sem er soldið minna en kvattúordesilljón (1 með 45 núllum) (Mér gengur brösuglega að finna vísindalegu skilgreininguna á silljón killjón filljón)
Skoðum bók þar sem Grýla og jólasveinarnir koma fyrir
Albert *starir á mynd af Grýlu*:
„Var Grýla einusinni barn?“
Pabbi:
„Já! Það hlýtur að vera!“
A:
„Og … borðaði hún þá börn?“ ![]()
Albert, fimm ára, er í þessum töluðu orðum í Messenger spjalli við deildarstjórann á leikskólanum sem varð hugsað til hans í sóttkví