Tag: íslenska

  • Vinn að haute couture útgáfu buffsins fyrir tískusnobbara

    Ég kynni „le boeuf“

  • BÍDDU, ER DESPACITO EKKI MEÐ JUSTIN BIEBER?!?

  • Fjársjóðskort

    „Þú gefur hafmeyjunum eitthvað að borða og svo læðistu framhjá eldfjallinu. Yfir brúna yfir ána með eitursnákunum. Ferð svo í gegnum skóginn og læðist framhjá tröllinu og læðist líka á milli indjánatjaldanna því indjánarnir geta skotið þig!

    Og þar er fjársjóðurinn!“

    Albert fylgist spakur með í bakgrunni

  • Ég á Leaf

    Lagði ég af stað í það langa ferðalag
    Ég áfram gekk í villu eirðarlaus
    Hugsaði ekki um neitt, ekki fram á næsta dag
    Einveru og friðsemdina kaus

    Ég á Leaf, ég á Leaf, yfir erfiðleika sveaf
    Ég á Leaf, ég á Leaf vegna þean
    Þegar móti mér blæs, yfir fjöllin há ég kleaf
    Ég á Leaf, ég á Leaf, ég á Leaf

  • Bíddu, var það ekki Pálmi Gunnars sem söng:

    Ég elska þig
    þótt þú sért úr, Steini

    Pálmi Gunnars?

    og söng hann ekki líka:

    Hvers vegna varst’ekki skyr?

    Pálmi Gunnars?

    Eða var það:

    Hvers vegna varst’ekki kýr?

    Pálmi Gunnars?
  • á gangi

    á gangi

  • Með fyrirvara um takmarkaða stærðfræðikunnáttu mína reiknast mér til að það séu ágætis líkur á að ég finni bæði Geirfinn og lækningu við krabbameini áður en ég finn fjandans sjónvarpsfjarstýringuna

  • Fór inn að svæfa lítinn dreng. Allt í einu gat ég ekki hætt að hugsa um Húsið á sléttunni

  • Göngulag

    Albert (13m) er á þessu dásamlega skeiði þar sem hann gengur sitt á hvað eins og hann sé drukkinn eða uppvakningur


    Albert is learning to walk and is currently at that wonderful stage where he walks either as if he’s drunk or a zombie

  • Sandra og Telma voru að leika sér við Mæju, bekkjarsystur Söndru.

    Mamma: „Hvað segiði stelpur, eruði allar skotnar í Justin Bieber?“

    Hneykslaður stúlknakór: „Nahhauts!“

    Sandra: „Hann er sko klikkað gamall!“

  • Einhverra hluta vegna tekur fólk það óstinnt upp þegar ég segi þeim að barnið þeirra sé ljótara en barnið mitt