Einhverra hluta vegna tekur fólk það óstinnt upp þegar ég segi þeim að barnið þeirra sé ljótara en barnið mitt
Tag: íslenska
-
Svo hægt
Vecmamma (langamma í Lettlandi): „Labbaðu með mér út í póstkassa“
Sandra: „Get ekki, við erum að fara!“
Pabbi: „Við erum ekki að fara strax. Af hverju fórstu ekki með henni?“
S: „En hún labbar svo hægt!“
Ég ræði við hana um að vera góð við langömmu
Fimm mínútum síðar geng ég framhjá glugga og sé að vecmamma er komin næstum hálfa leið út í póstkassa – kannski 20 metra af 40.
-
Urri
Epískur þáttur um Urra að læra að flauta. Get horft endalaust á þetta
Raa Raa the Noisy Lion – Raa Raa’s Whistle Worries





