Tag: íslenska

  • Tómas

    Fyrir 9 dögum:

    Albert: „Ég er svo spenntur! Bara 9 dagar!“

    Pabbi: „Nú? Hvað gerist eftir 9 daga?“

    A: „Tómas er að koma“

    P: „Tómas?“

    A: „Já, til að skipta um gluggana“

    P: *man ekkert, en athugar og júvíst, gluggaskiptamaðurinn heitir Tómas*


    Í morgun, kl. 6.17:

    A: „Tómas!!“

  • Skapandi börn í læknaleik

    Ég slysaðist inn á skurðstofu á versta tíma

  • Ég undanfarna daga: *held í mér andanum* „plísplísplís ekki deyja! kæra forrit, ekki deyja!“

    Ég í dag: Que sera, sera!

  • Hvernig lít ég út?

    Albert: „Pabbi hvernig lít ég út í andlitinu?“
    Pabbi: „Ööööö, eins og Albert? Af hverju spyrðu?“
    A: *horfir niður*

  • Að sofna

    Þreyttur piltur reynir að sofna. Liggur lengi útaf en svo…

    Albert: „Pabbi, hvað á ég að gera meðan ég er að bíða eftir að sofna?“

    Pabbi: „Prófaðu að hugsa um eitthvað fallegt“

    A: *dæsir* „Ég er búinn að hugsa um allt sem er fallegt!“

    P: „Ööö, prófaðu þá að hugsa um eitthvað sem er ekki fallegt, en ekki heldur ljótt“

    A: *hugsar smá* „Eins og rólur?“

  • Fjölskyldufræðingur? Hvað í ósköpunum er nú það? Kannski er það útskýrt í textanum fyrir neðan…

  • Þrjú ár!

    Albert var kominn í háttinn, örþreyttur og grét hástöfum. Lengi.

    Loksins þegar næst eitthvað út úr honum segir hann snöktandi: „Af hverju eru þrjú ár þangað til ég fer í fjórða bekk?!?“

    Pabbi: „Hvað er svona spennandi við fjórða bekk?“

    Albert: „Í fjórða bekk má maður sjálfur strauja perlurnar og þarf ekki að biðja kennarann um það!“

  • Feðradagurinn

    Sandra: „Ég veit að feðradagurinn er eftir 2 daga en ég vildi gefa þér þetta strax!“

  • Bílpróf og Catch-22

    Albert: „En hvernig kemst ég til að taka bílpróf ef ég er ekki með bílpróf? Á ég keyra án þess að kunna að keyra? Á ég taka strætó?“

    Drengurinn er sex ára

  • Ofurhetja

    Þegar þú ert að reyna að bjarga gögnum af síma með svo illa brotinn skjá að það tekur 5 mínútur að opna hann með pinninu í hvert skipti og hálftíma að slökkva á pinninu og svo er ekki hægt að installa smart switch appinu sem færir allt yfir í bráðabirgða símann en einhvernveginn tekst þér það samt og þó það hafi tekið 3 tíma þá kláraðirðu það og þér líður eins og ofurhetju

  • Fran Sisiskó

    Albert: „Þetta er Fran Sisiskó brúin“

    Fran Sisiskó brúin
  • Ekki í búningi

    Þegar þú nennir ekki í búning fyrir hrekkjavökuballið hjá krökkunum