Vitiði, ég yrði hreint ekki hissa ef minnst yrði á 23. febrúar 2023 í ævisögu Alberts þegar þar að kemur: Albert í Shangri La
Hann fékk semsagt að vera hjá mér í vinnunni í hátt í 2 tíma, sem dugði þó varla til að prófa allt: Það þurfti að smakka kalt vatn með búbblum, heitt kakó og klemmubrauð! Svo þurfti að spila fótbolta við pabba og Cyan, fúsball, pökk, rúlla um og snúa sér í risastórum stól, og hækka og lækka skrifborð, svo fátt eitt sé nefnt.
Ekki nóg með allt þetta, heldur fann hann páskaegg sem hefur verið í felum frá því fyrir páska
Cyan í fótbolta Að snúa sér í hringi milli bita af dýrindis klemmubrauðiStund milli stríðaPáskaeggið sem faldi sig aðeins of vel
Fyrir 7-8 árum átti ég mjög erfitt með að ímynda mér heiminn án Facebook. Núna er það mun auðveldara, enda Fb svo gott sem ónýtt. Það birtast endalust sömu 5-10 póstarnir, helmingurinn auglýsingar. Yfir daginn bætast kannski 10-15 póstar við
Þó ég sé með stillt á að sjá Most recent sé ég reglulega gamla pósta, t.d. 3-4 daga gamlar fréttir um óveður í aðsigi.
Rakst svo á grein(ar) um hvernig græðgi drepur þá sem komast í svona einokunaraðstöðu. Enshittification
“Here is how platforms die: first, they are good to their users; then they abuse their users to make things better for their business customers; finally, they abuse those business customers to claw back all the value for themselves. Then, they die.”
“Where others were cautious, Spotify was reckless. It bought popular podcasts and podcast networks, then severely enshittified their programs by locking them inside Spotify’s walled garden. Audience numbers plummeted, demoralizing podcast creators…”
Í gær fór Albert í heimsókn til vinar síns. Þegar ég sótti hann gekk treglega að draga hann út af því að hann var að gera „test“ til að leggja fyrir fimmtuga félaga pabba vinarins, sem sátu í stofunni og spiluðu á spil
Test
(tveir þeirra voru góðir, en einn kvaðst vera vondur)
Ungur drengur sem æfir fótbolta, fór á nokkrar æfingar í körfubolta og hefur horft á samtals 30 mínútur af handbolta: „Af hverju er handbolti ekki bara eins og fótbolti, nema bara með höndunum? SKREF?!? HVAÐ ER ÞAÐ?!?! ER BANNAÐ AÐ LABBA??“
Í gærkvöldi spurði Sandra spyr mig hvað hún ætti að teikna og teiknaði það svo…
Gaur borðar epliGaur með sólglerauguGamall kall (hún bætti göngugrindinni við sjálf)Gaur í stuttbuxumGaur með pípuGella tekur myndGella í fótboltaGaur spilar á gítarGaur spilar á gítar 2 (hún gerði sjálf aðra mynd með rafmagnsgítar)Gaur að pissa (Telma bað um þessa)Gella á hjólabrettiGella hlustar á uppáhalds lagið sitt og dansar eins og enginn sé að horfaTjaldstæðiGella les bókGamli kallinn með göngugrindina búinn að eignast vin með stafIndjániKúrekiGaur með blómFjöllKóngur og drottningTungl birtist yfir tjaldstæðinu
Þetta voru svo dásamlegar myndir að ég varð að setja þær hér inn og mun (vonandi) þurfa að uppfæra þetta reglulega ef myndir bætast við