Hvaða refsing er við hæfi fyrir gestkomandi barn á sjötta ári, sem kveikti á og hækkaði í neineineineineineineineineinei?
Tag: börnin
-
Sjö?
Telma: „1, 2, 3, 4, 5, 6, 8, 9…“
Sandra: „Nei! 1, 2, 3, 4, 5, 6, SJÖ! 8, 9“
T, kjökrandi: „Þú ræður ekki yfir mér!“
-
Áhugamál
Reyndi að gefa Albert graut í morgun, gekk frekar illa því hann var að dunda sér við nýjasta áhugamálið; að gnísta glænýju tönnunum sínum
-
Steingrímur
Í fjörunni í gær.
Sandra: „Ég fann Steingrím!“
Pabbi: „Haaa?“
S: „Ég fann annan Steingrím!“
Sýnir.
-
18 ára
Sandra, 6 ára: „Þegar maður verður 18 ára ráða pabbi og mamma ekki lengur yfir manni! Þá má maður gera hvað sem er … fara út í sjoppu og kaupa tyggjó og svona!“


