Tag: börnin

  • Hvaða refsing er við hæfi fyrir gestkomandi barn á sjötta ári, sem kveikti á og hækkaði í neineineineineineineineineinei?

  • Sjö?

    Telma: „1, 2, 3, 4, 5, 6, 8, 9…“

    Sandra: „Nei! 1, 2, 3, 4, 5, 6, SJÖ! 8, 9“

    T, kjökrandi: „Þú ræður ekki yfir mér!“

  • Sandra sá mömmu skrifa tengiskrift. Það gengur ekki.

    Gerði verkefni sem mamma þarf að skila á morgun

  • Augnablikin frá því þú opnar bleyjuna þartil þú manst að barnið var að borða rauðrófur

  • Albert, 7,5 mánaða, fer að hágráta ef ég hnerra of harkalega


    var núna að lemja sjálfan sig í hausinn með leikfangi, horfði dágóða stund á mig steinhissa og fór svo að gráta

  • Áhugamál

    Reyndi að gefa Albert graut í morgun, gekk frekar illa því hann var að dunda sér við nýjasta áhugamálið; að gnísta glænýju tönnunum sínum

  • Lifehack: Hættur að kaupa blýanta fyrir börnin!

  • Kartöflumús

    Telma kallaði mig Sigga Kartöflumús ?

  • Einu sinni voru tvær kindur.

    Kind 1: „Me!“

    Kind 2: „Einmitt það sem ég ætlaði að segja!“

  • Fimm ára stúlka elskar smjör næstum jafn mikið og faðir hennar elskar ost

  • Steingrímur

    Í fjörunni í gær.

    Sandra: „Ég fann Steingrím!“

    Pabbi: „Haaa?“

    S: „Ég fann annan Steingrím!“

    Sýnir.

    P: „Ó, þú meinar steingerving!“

  • 18 ára

    Sandra, 6 ára: „Þegar maður verður 18 ára ráða pabbi og mamma ekki lengur yfir manni! Þá má maður gera hvað sem er … fara út í sjoppu og kaupa tyggjó og svona!“