Tag: börnin

  • Fjölbýlishús

  • Needs more Láki

  • Á ströndinni

  • Í Lettlandi

    Laugardagur. Síminn hringir. Ance. Nema þetta var ekki Ance. Þetta var…

    Telma: „Hæ pabbi! Hvað ertu að gera? Ertu í vinnunni?“

    Pabbi: „Nei, engin vinna í dag, ég var að koma heim úr búð! Hvað ert þú að gera?“

    T: „Ég er að gera leikrit í Lettlandi. Sandra vill ekki horfa. Mamma er að lesa bók í Lettlandi. Ég var að hjóla með engin hjálpardekk! Opis keypti nýtt hjól í Lettlandi“

    P: „Mér heyrist vera gaman … í Lettlandi“

    T: *fliss* „Já! Í kvöld erum við að fara í bað í Lettlandi“

    Ance (í bakgrunni): „Telma, hvað ertu að gera?“

    T: „Ég er í símanum í Lettlandi!“

    A: „Ertu í símanum í alvörunni? Við hvern ertu að tala? Ertu nokkuð að stelast til að hringja í pabba til Íslands?“

  • Tiltekt

    Þegar þú finnur bíllykilinn við tiltekt fimm vikum síðar

  • obbossí!


    PS: Ég sótti skjalið og byrjaði að leiðrétta það og laga til að senda þeim aftur, en svo gafst ég upp og ákvað að fara frekar að gráta

  • „Verður allt í lagi með pabba?“

    -6 ára stúlka á leið í frí með öllum nema pabba

  • Barn: „Pabbi, viltu taka lausu tönnina?“

    Pabbi: „Ég má það ekki kjánaprik, tannlæknir er lögverndað starfsheiti!“

  • Svið

    Þegar börnin hlusta ekkert & heimta rauðan en ekki grænan & borða svo bara 1 bita & þú situr uppi með 2 pakka & sviðna tungu

  • Ungfrú Prinsessa

    Telma: „Af hverju er ungfrú Prinsessa kúla með hendur og fætur, en kallinn venjulegur?“

  • Þokkalega

    „Nei ástin mín, það á að segja þokkalega gott. Þ-Þ-Þ-Þokkalega!“

  • Fimm

    Sandra fann fimm laufa smára!

    /Sandra found a five leaf clover