Síðan Ance fékk nýja sokka í gær hefur Albert (12m) fimmtán sinnum reynt að bíta í rollu

Síðan Ance fékk nýja sokka í gær hefur Albert (12m) fimmtán sinnum reynt að bíta í rollu
Einhver er greinilega ekki mjög flínkur að telja því það eru augljóslega tvær osom mýs hér!
/someone obviously hasn’t learnt to count very well because there are clearly two awesome mice here!
„Þegar ég verð stór og búin að eignast barn og búin að kaupa mér síma vil ég að heyrist „ding dong dingadingdong“ þegar einhver hringir í mig“
-Telma búin að plana framtíðina
Gengur ljómandi vel eftir að við losnuðum við börnin
„Strákur með hanska sem ætlar að hoppa yfir runna til að sjá könguló sem flýgur með blöðru“
„Fiskur drekkur eplasafa og segir blúbb blúbb“
Matseðillinn á „Góða kaffihúsinu“
Get alveg mælt með ostasúpunni. Bíð eftir að prófa fiskana
Fiskarnir, frönskurnar og espressóið. Allt afbragðsgott og meðmæla verðugt
NB: Ég kom sjálfur með stútkönnuna
Albert (373d) er orðinn flínkur að standa.
Þarf samt enn að styðja sig við eitthvað traust, eins og t.d. foreldri, borð, helíumblöðru eða brauðsneið
366 daga gamall
Ekki byrjaður að ganga, ákvað að þess yrði ekki þörf fyrst hann væri farinn að hjóla
/366 days old
Has not started walking. Decided it wouldn’t be needed as he can bicycle
Þegar þú heldur á 364 daga syni þínum nýsofnuðum og heyrir suðið í moskítóflugu sem er að plotta árás á þig
…en nærð að halda ró þinni í 5 mínútur, leggja barnið og nærð helvítinu svo með flugnaspaða — á flugi — án þess að drengurinn vakni