Fyndið hvernig nýtilegt borðpláss í eldhúsinu minnkar um 25% við það að ungabarn nær þangað upp
Tag: börnin
-
YFIRLÝSING
Ég tel rétt að það komi skýrt fram á þessum vettvangi að ég var rétt í þessu að senda lögfræðingi mínum erindi varðandi erfðaskrá mína.
Í sem allra skemmstu máli, Albert er semsagt aftur kominn inn í erfðaskrána, en leiðindamálið sem varð þessa valdandi hefur eftir marga erfiða mánuði fengið farsælan endi.
Það kemur engum sem þekkir mig á óvart hve stórkostlega létt mér er við þessi málalok, enda ýmislegt sem gengið hefur á, það er engum léttvæg ákvörðun að hafa tugi þúsunda, jafnvel hundrað þúsund af sínu eigin holdi og blóði með þessum hætti.
Nema hvað, Albert, sem hefur hingað til fussað, sveiað og fúlsað við hvers kyns ostmeti og engum fortölum tekið hefur nú tekið ástfóstri við 26% Gouda — að því gefnu að osturinn sé í rifnu formi. Nú þegar er þessi ást svo sterk að til vandræða horfir: Drengurinn reyndi fyrr í kvöld að elta fiskrétt inn í ofn.
-
Albert klöngrast niður af stól í eldhúsinu og kemur hlaupandi inn í stofu, klæddur eins og Andrés Önd. Opnar skúffu, tekur út taubleyju. Beint strik inn í eldhús aftur, að sama stólnum og byrjar að nudda sessuna með bleyjunni.
Við nánari athugun reyndist hafa orðið eilítið óhapp, og hinn ungi herramaður (15 mánaða) vildi þurrka upp eftir sig
-
Esja
We all went on a hike

Lauf í haustlitum 
Stelpur í haustlitum 
Hlaupandi Sandra og Telma 
Haustlitir 
Sandra og Telma pósa 
Telmu farið að hlýna á göngunni 
Lauf 
Sólin 
Telma á hraðferð 
Horft upp 
Albert sposkur 
Göngum yfir brúna 
Útsýnið að neðan 
Tjörnin alveg slétt 
Ance, Albert, Telma og Sandra




