Tag: börnin

  • Fjársjóðsleit

    Þegar bleyjulaus ungur maður er farinn að spora út alla stofuna upphefst bráðskemmtileg fjársjóðsleit sem við höfum kosið að kalla Hvar er pollurinn?

  • Sandra: „Þumalfingur, þumalfingur, hvar ert þú? ? Hér er ég! Hér er ég! Góðan daginn, daginn, daginn!“

    Telma horfði á hendurnar á sér í smástund áður en hún byrjaði: „Efforðfingur, efforðfingur, ? hvar ert þú?“

  • Ég ver hartnær 6% þess tíma sem ég er heima og vakandi í að vefja klósettpappír aftur upp á rúlluna

  • pray for me fam


    Tilkynni stoltur að ég datt bara 1x!

    PS: Kemur notalega á óvart hvað er lítið híað á fullorðna karlmenn sem nota grindurnar fyrir litlu börnin allan tímann en tekst samt einhvernveginn að líta út eins og beljur á svelli

  • Þegar jólastundinokkar hefur augljóslega komist í Drafts möppuna þína og bísað þaðan úrvals gríni:

  • Þrátt fyrir allt sem Albert fékk, er Barbí dót systra hans meira spennandi. Hann er búinn að:

    • Fylla litla klósettið í Barbí húsinu af vatni
    • Setjast á Barbí bílinn og keyra um
    • Reyna að setjast á pínulítinn Barbí stól
    • -Henda litlu Barbí tvíburunum í stóra klósettið
  • Klukkan sjö í morgun kom dóttir mín og vakti mig þar sem ég lá hrjótandi í rúminu hennar.

    „Pabbi, síminn þinn er að pípa!“

  • Þjófstörtuðum um fimmleytið því Albert er svo lítill, og lokatölur eru komnar í hús:

    Ég fékk 2 pakka, en við þurfum að flytja í stærra húsnæði til að hafa pláss fyrir gjafirnar til barnanna

  • Mér til málsbóta vil ég bara segja að ég fór sko ekki raskat að skæla, þetta var fáránlega vel gert jóladagatal, ég er vansvefta og hálf veikur og ég var nýverið að skera lauk og yngri dóttir mín grenjaði miklu meira

    (Jóladagatalið Snæholt)

  • Þegar öll börnin eru vöknuð og komin fram kl 6.20 á aðfangadag

  • „Pabbi, mér er illt í hausverknum“

  • Svona líta hundrað þúsund milljón skrilljón silljón dilljón perlur út