Dóttir mín er talgalla og getur ekki sagt „til öryggis“
Hún segir sitt á hvað „til öryggissis“ eða „til örysiggis“
Dóttir mín er talgalla og getur ekki sagt „til öryggis“
Hún segir sitt á hvað „til öryggissis“ eða „til örysiggis“
Pabbi: „Skautaðu eins og vindurinn!“
Telma: „Nahhauts! Ég ætla sko ekkert að skauta eins og vindurinn!“
Börnin heimtuðu að ég semdi brandara;
Einu sinni var hús sem fór í búð og keypti skyr.
Afgreiðslustúlka: „Viltu poka?“
Hús: „Neinei, ég set þetta bara í ísskápinn!“
siggi mús
Tókst á endanum að semja annan (undir gríðarlegum þrýstingi):
Einu sinni voru 67, 83 & 99 að leika sér. Þá kom 4 og spurði hvort hann mætti vera með.
„Nahhauts! Þú ert allt of lítill!“
siggi mús
Þökk sé nasískum vinnubrögðum (ehem*) starfsfólks leikskóla dóttur minnar, fékk þessi hressi „skvissí“ að fylgja mér í vinnuna

*ekki hennar orðalag, hún er 6 ára
Nasi: „Ég ætla að rækta spaghettí!“
Sögumaður: „Því miður er ekki hægt að rækta spaghettí í jörðinni, Nasi!“
Nína: „Allir vita að spaghettí vex á trjám!“
Rumskaði í morgun við einhver torkennileg hljóð.
Um leið og ég áttaði mig á því að þetta væri líklega vekjari stökk ég fram úr rúminu og hljóp í ofboði til að athuga hvort börnin væru með púls
þegar þú stígur á Legokubb fyrir framan börnin og segir ekki eitt einasta fokkings efforð
![]()
![]()
![]()

Sandra (7 ára): „X er búinn að skrifa öll ljótu orðin í pennaveskið sitt! Hann skrifaði bitsj, fokk og sjett!“
Pabbi: „Jedúddamía!“
Telma (6 ára): „En hvað er bitsj?“
P: „Ööööö … svona vond pía“