Börnin mín eru geggjuð og æðisleg og frábær og best í heimi og ég elska þau út af lífinu, en ég byrja að vinna aftur eftir 46 klukkutíma og 41 mínútu
Tag: börnin
-
Viðey

Á leiðinni! 

Sést yfir til lands 
Fjara 
Halarófa 
Gönguferð 
Akkeri 
Skilti sem sýnir vegalengdir á valda staði 
Sandra í stuði! 
Horft til lands 
Leikvöllur! 
Albert með regnhlíf 
Viðeyjarstofa 
Í bátnum á leið aftur í land -
Vígalegur
Þegar þú færð loksins tækifæri til að nota vígalega vasahnífinn sem þú fannst fyrir 3 árum (bara til að skera samlokur í þríhyrninga, en samt)

Vígalegur hnífur -
Frídagur með börn
Fyrsta barn
- gufusjóða þrjár sortir af grænmeti
- lesa
- púsla
- kubba
- út á róló
- hlusta á tónlist og syngja með
Þriðja barn
- kókópöffs í sófanum
- 17 þættir af Hvolpasveit
- ipad
-
Rúgbrauð
Var greinilega ekki alveg nógu snöggur að verða við beiðni Alberts um meira rúgbrauð

Rúgbrauð með tannaförum 
Rúgbrauð með tannaförum -
Tær
Pabbi: „Stelpur, ef þið eruð svona óþekkar slekk ég aftur á sjónvarpinu og þá þurfið þið að sitja og telja á ykkur tærnar“
Barn: „Pabbi, við vitum alveg hvað við erum með margar tær!“
-
Víkingabrauð
Gerðum víkingabrauð niðrí fjöru í Norðurfirði
Fórum í ferð með Ferðafélagi barnanna

Sandra og Telma borða víkingabrauð 
Telma borðar víkingabrauð 
Sandra borðar víkingabrauð 
Albert glaður 
Víkingabrauð, bakað 
Víkingabrauð bakast -
Strompar og skorsteinar
Pabbi: *bendir* „Sérðu, þar sem eru strompar og skorsteinar, þar er Akranes.”
Barn:
„Ég sé enga strumpa!“ -
Fjórar vikur
Ég, í apríl: Já, það er geggjuð hugmynd að ég verði heima í fjórar vikur í sumar og hugsi um börnin! Við getum gert svo margt æðislegt saman!
Líka ég, í júlí, 2 vikur búnar af 4: Grátandi inni á klósetti meðan börnin horfa á jóladagatal Skoppu og Skrítlu

