Tag: börnin

  • Afleggjarar

    Þegar Albert fær að nefna afleggjarana

  • Fjarstýringin

    Datt í gólfið í sjöhundruðtuttugastaogfyrsta skipti… En með ofurmannlegu dundi og þrjósku tókst gamla að klastra henni saman aftur

  • Bangsar

    Albert var að leika sér með bangsana sína. Miðað við hamaganginn og lætin sem bárust úr stofunni var eitthvað voðalegt stríð í gangi. Bangsi/ Albert: „You are seriously emotional damage!“

  • Hvernig var í skólanum?

    Pabbi reynir að spyrja um daginn, en Albert heyrir eitthvað ekki. Best að reyna eitthvað nýtt til að ná athygli… Pabbi: „How was school today?“ Albert: „The teacher was … scamming me“ P: „Why was she scamming you?“ A: „Because I was … trufling annar bekkur“

  • Hreint glas

    Ég: *vaska upp glas* Barn: „Challenge accepted!“

  • Albert teiknar

    Þá sjaldan að Albert teiknar kann hann sko að velja myndefnið! Ghostbusters Grís

  • Bara draumur

    Pabbi: *er í svefnrofunum* Albert: „Eins gott að þetta var bara draumur!“ Pabbi: „Haaa?“ A: *vaknar* „Það var svona niðurfall úti, nema það kom vatn upp úr því. Rosa mikið vatn, alveg tsúnamí. En ég kallaði á krakkana: Þetta er bara draumur! Þetta er bara draumur! Og við vorum að setja allskonar dót fyrir en…

  • Shangri La

    Vitiði, ég yrði hreint ekki hissa ef minnst yrði á 23. febrúar 2023 í ævisögu Alberts þegar þar að kemur: Albert í Shangri La Hann fékk semsagt að vera hjá mér í vinnunni í hátt í 2 tíma, sem dugði þó varla til að prófa allt: Það þurfti að smakka kalt vatn með búbblum, heitt…

  • Glæpir borga sig ekki

    Köngulóarmaðurinn hefur klófest bófa og leiðir um hverfið til að sýna unga fólkinu að glæpir borga sig ekki

  • Test

    Í gær fór Albert í heimsókn til vinar síns. Þegar ég sótti hann gekk treglega að draga hann út af því að hann var að gera „test“ til að leggja fyrir fimmtuga félaga pabba vinarins, sem sátu í stofunni og spiluðu á spil (tveir þeirra voru góðir, en einn kvaðst vera vondur)

  • Erfitt að sofna

    Albert gengur eitthvað hægt að sofna. Liggur lengi á hliðinni með augun lokuð en snýr sér svo á bakið og starir upp í loft. Pabbi: „Er eitthvað erfitt að sofna?“ Albert: „Hvað er bókaormur?“

  • Albert Einstein

    Albert: „Veistu hvernig Albert Einstein dó?“ Pabbi: „Nei! Hvernig?“ A: „Í Squid Game“