Tag: börnin

  • Sandra teiknar

    Sandra ásamt nokkrum bekkjarfélögum. Það er augljóst hver er hvað


    Hef ekki hugmynd hvað er í gangi hér, nema að myndin er geggjuð!


    Því miður er ekki búið að skrifa þessa bók ennþá, en kápan lofar endalaust góðu

  • Gleymni

    Af og til gleymir maður því í augnablik að stelpurnar reyna að myrða hvor aðra nokkrum sinnum á dag ???

  • Skemmtilegur dagur?

    Heimakennari: „Jæja ástin mín, látum okkur sjá! Verkefni dagsins er … að skrifa um skemmtilegan dag!“

    Barn: ?„Ég skil ekki..? Hvað er það?“

  • Læti

    *læti á heimilinu*

    Albert: *setur í brýrnar, biður um blað, teiknar á það og hleypur svo um og sýnir öllum* „Hérna stendur Bannað að tala!!“

  • Úps

    „Úps pabbi!“

  • Hvolpasveit

    Telma: ? „Það eina sem Albert horfir á er Hvolpasveit!“

    Albert: „Nei! Ég horfi líka Po patról! Og Mætí pöps!“


    (Mætí pöps eru semsagt þættir / bíómynd þar sem Hvolpasveitin er með ofurkrafta: Mighty Pups)

  • Netflix

    Gaman að sjá hvað börnin voru fljót að læra á Netflix.

    Ekki að ég sé neinn sérfræðingur, en mér skilst að það eigi að leita að einhverju í klukkutíma og horfa svo á Mamma Mia í tólfta skipti

  • Æm nott dedí!

    Pabbi: *kemur „heim“ úr vinnunni×*

    Peppa pig: *er í sjónvarpinu*

    Mamma: „What happened to George?“

    Pjakkur (EKKI ORÐINN EFFING FJÖGURRA ÁRA!!): „Hí iss sikk“

    P: ????

    ×niður tröppurnar


    Pjakkur: „Helló momí!“

    Mamma: „Hello daddy!“

    Pj (EKKI ORÐINN EFFING FJÖGURRA ÁRA!!): ? „Nóóó! Æm nott dedí! Æm beibí!“


    Pjakkur: „Pabbi hvað þýðir bödí?“

    Pabbi: „Böddí?“

    Pj: „Nei, bö-dei“

    P: „Ahhhh, börþdei! Það þýðir afmæli“

    Pj: „Kinkar kolli. Hún sagði líka jú tú!“


    Pabbi: „Are you dog?“

    Pjakkur: „Nó!“

    Pa: „Are you pig?“

    Pj: „Nó!“

    Pa: „Are you car?“

    Pj: „Nó!“

    Pa: „Are you baby?“

    Pj: „Nó!!! Ég er Albert!! Ég er hættur þessum leik!“

  • Uppáhalds lögin

    Pabbi: *heyrir háværa tónlist niðri*

    P: *kíkir niður*

    Albert: *bendir á sjónvarpið* „Pabbi þetta er spottafæ“

    Ég veit ekki hvernig, en drengnum (ekki orðinn fjögurra ára) tókst að finna Spotify appið í sjónvarpinu og er byrjaður að hlusta á uppáhalds lögin sín

  • Derhúfa

    Albert er núna með böggum hildar (les: öskurgrenjar) af því að derhúfa (sem hann sá í fyrsta sinn á ævinni á leiðinni út um dyrnar í morgun) varð eftir í leikskólanum

  • Rímorðagrín

    Albert hefur uppgötvað rím og orðagrín – rímorðagrín eða grínorðarím:

    Pabbi: *fiktar í fjarstýringu fyrir sjónvarp* „Sjáðu, nú er líka hægt að horfa á þetta. Viltu horfa á Strumpa?“

    Albert: „Hahaha! Strumpa – prumpa!!“ *deyr úr hlátri*


    Pabbi: *strögglar við að koma syninum í sokka* „Sjáðu! Það eru hauskúpur á sokkunum!“

    Albert: *skoðar* „Hauskúpur — hauskúkur!“