„Þetta er Albert og ég er leiður af því að allir krakkarnir á leikskólanum voru inni að dansa konga og ég var aleinn úti.“

Telma kom með á hundanámskeið. Þar fékk Húgó að hitta og leika við fullorðinn íslenskan fjárhund
Pabbi: „Nú sérðu hvað Húgó verður stór þegar hann verður fullorðinn!“
T: „Húgó verður kannski stærri, þessi hundur er orðinn svo gamall“
P: „Gamall?? Minnka hundar þegar þeir verða gamlir?“
T: „Þess vegna er gamalt fólk hrukkótt! Húðin getur bara stækkað, ekki minnkað“
Pabbi: *setur fiskbita í egg og veltir upp úr raspi*
Albert: „Ég vil hjálpa!“
P: „Nei, þú varst óþekkur!“
A: *potar í fiskbita* „Ég var ekki óþekkur með þetta…“