Tag: börnin

  • 17 mínútur

    17 mínútur liðnar af 2022:

    Telma, 9 ára: „Af hverju líður mér eins og það sé ennþá 2021?“

  • Ég elska alla

    Úti að labba með Húgó í storminum í gærkvöldi: „Pabbi, ég elska alla í heiminum! Líka fólkin sem ég hef aldrei séð!“

  • Albert les: „… þau veltu fyrir sér kringum…“

    Pabbi leiðréttir: „Hvernig!“

    A: *lítur skilningsvana á pabba … teiknar hring í loftinu með fingrinum*

    P: „Nei! …í bókinni!“ *bendir* „Það stendur Hvernig í bókinni!“

  • Galdrakarl

    Í síðustu viku fengu krakkarnir á leikskólanum að sjá sirkus, m.a. töframanninn Daníel. Í gærkvöldi:

    Albert: „Komdu, ég ætla að sýna þér eitt galdr“

    Pabbi: *kemur*

    A: *fer að glugga sem snýr í austur* „Sjáðu, þarna er tunglið“

    P: „Flott!“

    A: *ýtir pabba frá glugganum* „Abrakadabra simmsalabimm!“

    A: *dregur pabba að glugga sem snýr í norður og bendir út* „og núna er tunglið þarna!“

  • Listar

    Albert, heima veikur: „Hvað ertu að gera?“

    Pabbi: „Skrifa lista yfir ýmislegt sem þarf að gera“

    A: ? „Ég ætla líka að skrifa lista yfir það sem þarf að gera. Og þú mátt ekki segja nei!“

    …búinn að finna smugu í reglunum hélt hann svo áfram…

  • Streakið

    Fyrir tveimur vikum greindist Albert, fimm ára, með Covid.

    Hefði þetta gerst fyrir ári hefði ég lítið sem ekkert sofið fyrr en fjölskyldan væri laus úr sóttkví og einangrun – fastur í hugsunum um örkuml, dauða og ömurð

    Núna: Fökk! ?? Ef ég lendi í einangrun missi ég streakið í að ganga 10 þúsund skref á dag

    PS: Hann varð ekki veikur og sýndi aldrei nein einkenni. Ekkert okkar smitaðist

  • Bing bong song

    Ó mig auman! Ég verð fyrir aðkasti sem jaðrar við einelti á mínu eigin heimili!

    Mér er gefið að sök að hafa sungið þetta og látið alla fjölskylduna fá það á heilann

    The Bing Bong Song
  • Aðra helgina í röð sit ég og horfi á Emil í Kattholti, með misáhugasama krakkaskratta sem detta inn og út

    En mikið er nú gaman að heyra Anton kalla Emil strákskratta. Ég saknaði þess ógurlega i fyrstu myndinni

  • Listi

    Veit einhver um búð þar sem gæti verið hægt að fá allt á þessum lista?

    Því annars fækkar á heimilinu um einn fimm ára ?


    Hér má sjá umræðu sem skapaðist á Twitter

    Í umræðunni kom m.a. fram:

    Þetta eru víst kvattúordesilljón peningar – í óskilgreindum gjaldmiðli – eða silljón killjón filljón peningar – (fer eftir því hvern þú spyrð).

    Skv. gúggli frænda er samanlagður peningur í veröldinni víst ekki nema 670 trilljónir ISK (e. quintillion (670 með 18 núllum)), sem er soldið minna en kvattúordesilljón (1 með 45 núllum) (Mér gengur brösuglega að finna vísindalegu skilgreininguna á silljón killjón filljón)

  • Grýla

    Skoðum bók þar sem Grýla og jólasveinarnir koma fyrir

    Albert *starir á mynd af Grýlu*: ?„Var Grýla einusinni barn?“

    Pabbi: ?„Já! Það hlýtur að vera!“

    A: ? „Og … borðaði hún þá börn?“ ?

  • Spjall

    Albert, fimm ára, er í þessum töluðu orðum í Messenger spjalli við deildarstjórann á leikskólanum sem varð hugsað til hans í sóttkví

  • Garg

    Búið að lesa og slökkva ljósin fyrir háttinn

    Albert: „Fólkið sem á heima í hausnum á mér er að garga! Ég er ekkert sybbinn!“

    Sem betur fer var dimmt svo hann sá ekki á mér svipinn

    A: „Í hausnum á mér er ennþá dagur! Ég get ekki sofnað!“