Tag: börnin

  • 5 skeiðar. Sjóðandi heitt vatn. Hræri. Bíð. Horfi. Eftirvæntingin vex. Hræri aftur. Finn höfga angan. Ýti niður prikinu.

    Helli í uppáhalds bollann. Heilög stund er að renna upp. Hinkra eilítið til að njóta augnabliksins. Hjartað slær hraðar.

    Tek bollann og lyfti upp að vörum til að … „Pabbiiiii!“

  • 17. júní

    Klukkutími í röð til að láta mála íslenska fánann á andlit

    3 tímum síðar: hálftími að þrífa þetta af

  • Unglingaveikin

    Ein fimm ára komin með unglingaveikina


    skömmu síðar sló í brýnu, varð persónulegt

    friðarumleitanir báru þó árangur um síðir

  • Hver vinnur?

    Telma, 4 ára: „Pabbi, hver vinnur?“

    Pabbi: „Kemur í ljós þegar leikurinn er búinn, ástin mín“

    T: „PABBI! HVER VINNUR?!!?“

  • þegar þú mætir með dótturina á leikskólann og leikskólakennarinn segir við hana: „Hæ! Hvar eru gleraugun þín?“

  • Að hengja upp þvott

    Fullorðinsföt: 20 flíkur, 0:04:28 klst

    Barnaföt: 19.752 flíkur, 2:12:15 klst

  • Kúlugúbbar

    Kúlugúbbarnir, þið vitið, þessir sem koma loftbólur úr munnunum á þegar þeir anda, voru að lenda í snjóflóði

  • Takk fyrir í dag

    Pabbi: „Góða nótt stelpur … Takk fyrir í dag!“

    Sandra: „Við höldum áfram á krakkarúv punkturis!“

  • Kastali

  • Ný íbúð

    Sandra búin að koma sér fyrir í efri kojunni
    Sandra búin að innrétta nýju íbúðina
  • Djús

    Telma: „Pabbi, má ég fá djús?“

    P: „Já. Viltu rauða glasið eða gula glasið?“

    T: „Já“

    P: „… ööö … gula glasið?“

    T: „Ég sagði já pabbi. Heyrðirðu ekki að ég sagði já? Ég sagði: Já!“

  • Dóttir og heimspekingur (6 ára): „Pabbi, fá Karíus og Baktus Karíus og Baktus?“