Tag: börnin

  • Höfum náð heraga í morgunrútínuna

  • Gekk illa að svæfa Albert, 8 vikna, í gærkvöldi. Hann var ekki búinn fá alveg nóg af því að horfa á rimlagardínurnar

  • Leiðindi

    Þegar hægt er að nýta barnaefnið við barnauppeldið er ég til í að sjá í gegnum fingur mér með umtalsverð leiðindi

    Eins og hann er óstjórnlega leiðinlegur, hef ég notað Danna tígur og lærdóms-raulið hans alveg heilmikið

    Ræð varla við mig, þetta er svo leiðinlegt. En „Ef þú reiður ert, þá er málið sko… andaðu djúpt, og teldu svo 1-2-3-4“ virkar!

    PS: Yfir kvöldmatnum í gær rauluðu eiginkonan og börnin við mig : „Þú skalt smakka allan mat því hann kannski góður er“

  • „Eigum við að kíkja á svínin? Það eru víst lítil svín líka!“ Fullorðin manneskja sem kemur augljóslega ekki nógu oft í Húsdýragarðinn


    Einhver sem veit ekki að litlu svínin heita:

    GRÍSLINGAR!!

  • ok

  • Telma fékk hita um hádegi í gær. Svaf eiginlega allan daginn án þess að vakna mikið. Vaknaði til að gubba um fimmleytið í morgun. Svo var hún aftur orðin eldhress prakkari um hádegið.

    Núna getur hún ekki hætt að segja „sko“.

    Vitiði hvort eitthvað er að ganga?

  • Þegar

    • #1 þarf að læra og fara í bað
    • #2 er með 38,7°c hita
    • #3 er 7 vikna

    veistu af hverju fólk varaði þig við hinu ógurlega fyrirbæri “outnumbered”

  • Sandra „bakaði“ fyrir afmæli Rósu, sem er einmitt ósýnilegi leynivinur hennar

  • Kom heim og fann stelpurnar í eldhúsinu með ristaða brauðsneið, eins og dáleiddar en samt skríkjandi af gleði — að horfa á smjör bráðna

  • Í nótt var Ance á (gluggalausu) baðherberginu að skipta um bleyju. Hún rétt náði að sjá bingóvinninginn áður en rafmagnið fór

  • Stelpurnar (6 & 4,5 ára) á fyrstu skautaæfingunni

    Þær: meira á bossanum en uppréttar

    Ég: passa að þær sjái mig ekki veina af hlátri

  • Double trouble on the ice