Ömurlegt að vera fátækur og þurfa að úllendúllendoffa hvor dóttirin fær mandarínuna og hvor æfóninn
Annars er lausnin augljóslega að setja æfóninn í skóinn hjá barninu sem þú elskar mest
Ömurlegt að vera fátækur og þurfa að úllendúllendoffa hvor dóttirin fær mandarínuna og hvor æfóninn
Annars er lausnin augljóslega að setja æfóninn í skóinn hjá barninu sem þú elskar mest
„Mig langar í heimsókn til Þriðriku!“
Telma: „Er ekki dónalegt að segja kúkalabbi?“
Ég: „Jú“
T: „Obbossí! Ég sagði óvart kúkalabbi! Ég sagði: „Er ekki dónalegt að segja kúkalabbi?““
Hmmm, það væri nú soldið gaman að vita hvað ég er búinn að vera með gubb á bakinu lengi
Það erfiðasta við að eiga barn í skóla er að eyða 20 mín á dag í að finna blýant til að skrifa í lestrardagbókina
Íbúðin er tönn í munni Jens og við veika Telma Karíus og Baktus
Hlusta á Karnivalía með veiku barni.
Hún syngur hástöfum með: „Mamma fékk æfökk í amælisgjöf!“
Er heima með Telmu veika. Gaf henni kex. Á meðan hún maulaði á því setti hún upp heimspekilega vangaveltusvipinn: „Pabbi, er hauskex búið til úr haus?“
„Pabbi, syngja!“
Sandra 3x í nótt þegar ég dottaði þar sem ég sat á gólfinu og söng svo hún gæti sofnað aftur
Af hverju í ósköpunum ætti maður að gefa börnunum sínum dýr og fín leikföng þegar þau geta leikið sér í 20 mínútur með nýja tannburstann sinn?
Af því ég veit þið voruð líka að velta því fyrir ykkur: Á ensku heitir Hænulína í Hvolpasveit Chickaletta
Sit krókloppinn í 3° hita í skautahöll meðan einhver spilar öll uppáhalds jólalögin sín á 11