Tag: Albert

  • er eitthvað aumara en 6 mánaða gamalt barn með gubbupest?

  • Ráðstafanir

    Á meðan Ance leit af Albert í smástund í gær var hann búinn að rúlla sér út á mitt gólf.

    Þetta kallar á ráðstafanir

  • Í gær: Albert lærði að velta sér á magann

    Í dag:

  • 2017

    Þá er 2017 gengið í garð og hér í sveitinni byrjar það með látum!

    Albert útskrifaðist í gær úr stífum æfingabúðum þar sem farið var yfir grunnatriði þess að velta sér á kviðinn. Á ögurstundu, eftir að faðir hans hafði pískað hann áfram eins og pínulítinn kínverja í fimleikabúðum tókst honum loks að velta sér yfir á bumbuna. Svo skemmtilega vildi til að þetta var sirkabát 20 sekúndum eftir að faðir hans lagði frá sér (kvik)myndavélina þegar minniskortið fylltist.

    Stelpurnar standa einnig í stórræðum, en þær fluttu búferlum. Nú býr Telma í efri koju en Sandra er flutt í þá neðri. Sandra vaknaði tvisvar í nótt og bar við erfiðleikum að aðlagast lífinu á nýja staðnum.

  • Bestu jólagjafirnar í ár voru þessi fallega þríhyrna frá Söndru, 6 ára, og tvær flugbeittar tennur frá 5 mánaða Albert

  • Hmmm, það væri nú soldið gaman að vita hvað ég er búinn að vera með gubb á bakinu lengi

  • Albert spýtir snuddunni 15cm án atrennu. Vil ekki setja of mikla pressu á 4ra mánaða gamalt barn, en hann mun ná langt

  • Bergmál

    Frá 26. október til 5. nóvember (11 dagar) stóð þannig á að ég var 45 ára og pabbi 90.

    Frá 26. október 2061 til 25. júlí árið eftir (akkúrat 9 mánuðir) mun standa þannig á að Albert verður 45 ára og ég 90.

  • Í 11 daga var ég 45 ára og pabbi 90 ára.

    Eftir 45 ár verður Albert 45 ára og ég 90 ára í 9 mánuði

  • Halloween

  • Ungur maður (þriggja mánaða og þriggja daga) bíður þolinmóður eftir systrum sínum með pabba gamla

  • Í nótt lét Albert (14m) eins og andsetin bestía á amfetamíni í 2,5 klst


    Í morgun fann ég þetta í eldhúsvaskinum


    Nú hummar Telma jólalög


    Þið sem hafið lesið Opinberunarbókina, hvað gerist aftur næst?