Tag: Albert

  • Nýtt útlit

    Eftir erfiðan hálftíma fyrir framan spegilinn virðist hann nú vera búinn að taka nýtt útlit í sátt. Amk í bili /after a difficult half hour in front of the mirror, he appears to have accepted his new look. for now

  • Einn eða þrír?

    *skoðum bók* Albert: „Þetta er ekki 1! Þetta er þrír!“ Pabbi: hmmm? A: „Snjókarl, gulrót og fata!“

  • Háttatími

    Pabbi: „Æ nei! Ég nenni ekki að labba upp!“ Albert: *ýtir af öllu afli á rassinn á pabba meðan pabbi skríður á undan upp tröppur* P: *leysir óforvarandis vind* A: *hleypur mjög dramatískt burt eins langt og hann kemst* „Ó nei! Ég er að fjúka!!“

  • Albert teiknar

    Pjakkur: „Þetta ég! Með klurrur! Og skó, bláa skó!“ Pabbi: „Já, mjög flottar krullur“ Albert: „Þetta er afi. Í baði. Afi í baði hjá okkur“

  • Vatn

    Ef það flokkast undir hobbý að sprauta vatni á allt sem fyrir verður, þá er Albert búinn að finna sér nýtt hobbý

  • Sumar

    Hitastig: *fer yfir 5 gráður* Við: „SUUUUUUMMAAAAAAARRRRRR!“

  • Samkomubann

    Í samkomubanni hafa börnin m.a.: Kitluvélin í aksjón

  • Snapp

    Ég vil biðja þau ykkar sem fengu ekkert snapp frá Albert í kvöld afsökunar. Það er ekki víst að hann meini neitt með þessu, að hann vilji skilja þig útundan. Hann er enn að læra á Snapchat, og kann ekki alla stafina, svo það er alveg inni í myndinni að honum hafi barasta yfirsést nafnið…

  • Aðeins of mikið

    Tæpra fjögurra vetra pjakkur (sem er búinn að horfa aðeins of mikið á jútjúb) leikur sér Pt. i „Jú vont nudd? Jú giv pjening? Hér is pjening. Fein kjú verrímæts“ Pt. ii „Hæ, hvad jú dúing? -Æm skelletonn – Jú skelletonn? -Jess æm. -Gúdd næn … tsjúgg!“ Pt. iii „Tojlet! Tojlet! Tojlet! Vú hú!! Vodd…

  • Netflix

    Albert uppgötvaði um helgina hvernig á að skipta um myndirnar sem birtast af okkur fjölskyldunni í Netflix appinu Nú eru liðnir þrír dagar og honum þykir þetta ennþá töluvert meira spennandi en að horfa á eitthvað

  • Pizza

    Ég geri pizzu: Hmmm, þetta er of lítið af osti, best að setja oooooggulítið meiri ost! Allir: *pota í* „Hvað segirðu, er ostur í matinn aftur?“

  • Sviss

    Pabbi: *í eldhúsinu að bardúsa* Úr stofunni heyrist: „Sviss svass sviss!“ P: *kíkir fram* Albert: *liggur á bakinu og gerir engil í stórri hrúgu af púslum* „Sviss svass sviss!“ (sviss svass sviss er hljóðið sem heyrist í rúðuþurrkunum í laginu Hjólin á strætó)