Þegar fjögurra ára drengur á tíu ára systur sem hlustar mikið á 6ix9ine getur það endað með því að ungi maðurinn hleypur um allt syngjandi punani nani nani – punani nani nani
gæti sosum verið verra

Albert verður oft ánægður þegar hann kíkir í skóinn á morgnana, en aldrei eins og í morgun, þegar hann kíkti í skó foreldra sinna (sem hann setti sjálfur út í glugga í gærkvöldi) og fann þar pínulitla kartöflu í hvorum skó
Hann hljóp inn í leikskólann í morgun og gargaði „Pabbi og mamma fengu kaltöflu í skóinn!!“

Pabbi: *úti í göngutúr*
Sími: *hringir*
Albert: „Ég var að hringja í afa óvart!“
P: „Ha? Tókst þér að hringja í afa þinn?“
A: „Já, afi var að tala!“
Kemur í ljós að drengurinn var aleinn að fikta í símanum niðri í stofu og honum brá víst aðeins þegar gamli maðurinn svaraði.
Svo fór hann upp og sagði mömmu frá áður en hann hringdi í mig il að færa mér tíðindin
Albert verður semsagt fjögurra ára í júlí, og afi hans 95 í nóvember
Það lítur út fyrir að Albert sé búinn að læra litlu stafina líka
/looks like Albert has learnt the lower case letters as well

Eftir þrotlausar rannsóknir hefur Albert, fjögurra ára, fundið alla stafina sem hægt er að gera með kommu.
Og ess

og hér er hann að kenna Telmu, nær níu ára gamalli systur sinni að gera ? og &

Pabbi: „Albert, hvað viltu gefa systrum þínum í jólagjöf?“
Albert: ![]()
![]()
„Blóm!“ … *hleypur og grípur kaktus* „Þetta blóm!“
A:
„Nei, blóm er bara fyrir Telmu! Þetta er fyrir Söndru“ *kemur með tuskudýrs-hund sem er búinn að vera á heimilinu lengur en hann sjálfur*
A: *nær í blað* „Hvernig skrifar mar glevi jól?“


