Tag: Albert

  • Hinn rassinn

    Albert: „Mér er illt í hinum rassinum!“ …hann benti á endanum á aðra rasskinnina

  • Hver syngur þetta aftur?

    Kem heim úr vinnunni Albert *syngur*: „Hevjú eva sííínarein“ Ance: ? *við mig* „Hver syngur þetta aftur?“ A: „Andri!“ Andri er kennari á leikskólanum

  • Rúsínurass

    Kem að Albert hálfum inni í ísskáp að þamba ávaxtasafa beint úr fernunni. Albert: „Ég er rúsínudrengur. Nei, bíddu, hvernig segir maður aþtur?“ Pabbi: „Ööööö, meinarðu rúsínurass?“ A: „Já! Ég er rúsínurass og djúsínurass!“

  • Morgunmatur

    Loksins kemur pabbi til að athuga hvernig gengur að borða morgunmatinn: AB mjólk „með rúslí og músínum” Pjakkur: „Þetta borðast eins og gamalt”

  • Pizza

    Note to self: Næst þegar þú ætlar að geyma kanil í kryddstauk sem stendur á Pizzakrydd fyrir krakka, skaltu muna að skrifa KANILL með mjög stórum stöfum Ok, lítur ekki út fyrir að þetta sé milljón króna hugmynd Krakkarnir sökuðu mig um að reyna að drepa sig Konan hefur reyndar aldrei borðað svona mikið af…

  • Fuglar

    Albert: *dæs* „Ég er búinn að læra SVO mikið um fugla!“ Pabbi: „Já, þú varst að læra um krumma um daginn, ertu búinn að læra um fleiri?“ A: „Já, snjótigglingur er hvítur en með svart skott!“

  • Banka

    Albert: „Pabbi hvað gerist í þessari bók?” Pabbi: „Þau voru að ræna banka” A: „En af hverju?” P: „Af hverju hvað?” A: „Af hverju voru þau að reyna að banka?”

  • Hvað í ósköpununum

    Albert: „Hvað í ósköpununum!“ *bendir hneykslaður á ökklann á sér* „Ég er alltaf að fá sár!“

  • Pabbi reynir að hjálpa Albert að sofa alla nóttina í sínu rúmi: „Sko, skrýmsli eru ekki til í alvörunni — bara í æpaddnum og sjónvarpinu. Stundum sér maður þau í draumi, en þau eru bara til í þykjó!“ Pj: „En löggur? Eru löggur bara til í þykjó?“

  • Einn

    Pabbi: „Ég ætla út með Húgó. Er allt í lagi að þú sért einn niðri? Ef þú þarft hjálp við eitthvað geturðu bara náð í mömmu uppi“ Albert, fjögurra ára: „Ég geri bara sjálfur“

  • Hvar er Afríka?

    Albert, fjögurra ára: *bendir* „Hvað er þetta?“ Pabbi: „Stykkishólmur“ A: ? „Hvar er Afríka?“

  • Ekki trufla

    Albert: „Pabbi, má ég fara æpadd?“ Pabbi: „Já, þú mátt vera í æpadd í þrjátíu mínútur! Ég stilli klukkuna og þú hættir þegar kemur píp, ok?“ A: „Tíminn byrjar núna?“ Pa: „Já“ A: „Ok, ekki trufla mik!“