Héldum upp á daginn með því að rölta upp að Ljósárfossi í Hallormsstaðaskógi




Héldum upp á daginn með því að rölta upp að Ljósárfossi í Hallormsstaðaskógi




Ég veit ekki hvað það segir um hversu oft (ehem) börnin mín fá gos að dóttir mín er farin að safna tómum dósum og taka myndir af sér með þær
Ég: Kaupi alvöru sjónvarp
*hálft ár*
Líka ég: Fer í bústað með litlu sjónvarpi og engu HD:
„óboðnu gesti“?!?

Við: Hvernig væri að prófa að gera eins og eðlilega fólkið og fara eitthvað í vetrarfríinu?
Líka við: Frábær hugmynd. Kannski fengum við hana soldið seint, en jú, frábær hugmynd!
Þannig atvikaðist það að við ókum á Egilsstaði í vetrarveðri og appelsínugulri viðvörun í lok október




Farið út úr bænum í vetrarfríinu sögðu þau.
Það verður gaman, sögðu þau


Uppfært daginn eftir: Hefði getað sleppt þessu
Stelpurnar eru búnar að moka öllum snjónum á pallinum fram og til baka svona fjórum sinnum

Sjónvarp: *auglýsing fyrir sænsku sjónvarpsþættina Systur 1968*
Telma: *hleypur og nær í eitthvað* „Er þetta mynd um þessa bók?“


Það besta við að láta skoða bílinn í Tékklandi er að í sjónvarpinu rúllar Bob Ross og kennir okkur að mála
Já en þessa dagana eru svalirnar ekkert sérstaklega þurr staður

A: „… já en hvernig veistu hvað er best að gera?“
B: „Eðlisávísun!“
A: „Fyrirgefðu, en eðlisávísunin þín er meira svona eins og gúmmítékki“

