Ég: *geng 6 kílómetra og ýti á undan mér barni í kerru*
Heilsuúr: 17 skref! Hreyfðu þig, hlussan þín!
Ég: *vaska upp í tíu mínútur*
Heilsuúr: 1271 skref! Gaur! Svona á að gera þetta! Hér er medalía
*stíg inn í strætó*
*tek upp síma*
*reyni, reyni, reyni, reyni, aflæsi*
*leita að strætó-appi*
*hvað er ég eiginlega búinn að nota mörg öpp?!?*
*finn*
*nei bíddu, þetta er nýr miði! ég var með opinn miða*
*hvar ertu, opni miði?*
*nei, ekki þarna*
*þarna!*
*sýni*
Vagnstjóri:

6:54: *þrusk*
Rumska. Opna augun. Það tekur smástund að aðlagast myrkrinu, en það mótar fyrir hreyfingarlausri veru úti á miðju gólfi
Vera *hvíslar ofurlágt*: „Ég langar leika með bílinn“
Veran breytist hægt í Albert sem heldur á löggubíl
6:55: Vekjaraklukka: „Píp“
Veit einhver hvað Páll Vilhjálmsson á mörg börn..?

… af því …
wait for it…
wait for it…
hann er skilgetinn faðir pabbabrandaranna *barúmmtiss*



