siggimus vs the cows
-
Sýning
Albert: *nær í Bluetooth hátalara og spjaldtölvu* A: „Ég ætla að gera sýningu“ Pabbi og mamma: *horfa spennt* A: *Kveikir á lagi, hreyfir varir með*: „Við erum dicks, við erum dicks, já.“ *skælbrosir* „Búmm búmm búmm. Allir kallar eru dicks, já“
-
Misvísandi skilaboð
Smá misvísandi skilaboð eftir því hvora hlið hússins ég spyr
-
Snakk
Pabbi: *Kem að Söndru í eldhúsinu, með litla hrúgu af kartöflum* „???“ Sandra: „Er að gera snakk“ P: „Mmmm, veistu hvernig á að gera snakk?“ S: *skilur ekki spurninguna* „Neeeiii..?“ S: *hálfnuð að flysja fyrstu kartöfluna* „Pabbi..?“ P: *flysjar* S: *hálfnuð að sneiða niður fyrstu kartöfluna* „Pabbi..?“ P: *sneiðir kartöflurnar niður með flysjaranum* Sýnist við…
-
Albert er að horfa á Hvolpasveit, þáttinn þar sem það lenti steinn yfir ræsi/ niðurfalli og Alex gleymdi að skrúfa fyrir garðslönguna og bóndabær Alla bónda fór á bóla-bóla-bólakaf yfir nótt
-
Lúðrasveit verkalýðsins flytur nallann í sjónvarpinu í fullum skrúða Barn: „Af hverju eru löggumenn að spila þetta lag?“
-
Á tímanum sem leið frá því ég samþykkti að fara á leikvöllinn með Albert þar til allir voru tilbúnir var sólin horfin og komið haglél *komum út í dyr* Pabbi: „Ööööö, eigum við ekki bara að vera inni?“ Albert: „Neinei“
-
Tannálfurinn
Dóttir (verður 10 í sumar): „Pabbi, tannálfurinn er ekki til“ Pabbi: *reynir að kæfa glott* „Hvað meinarðu?!“ D: *opnar lófa, sýnir tönn* „Ég setti hana undir koddann án þess að segja ykkur“ P: *ekki flissa! ekki flissa!!* D: „Hún var undir koddanum í margar nætur“
-
Nýtt útlit
Eftir erfiðan hálftíma fyrir framan spegilinn virðist hann nú vera búinn að taka nýtt útlit í sátt. Amk í bili /after a difficult half hour in front of the mirror, he appears to have accepted his new look. for now
-
Pabbabók
Var að finna þetta Beið mín þegar ég kom síðast heim frá útlöndum, í lok september
-
Einn eða þrír?
*skoðum bók* Albert: „Þetta er ekki 1! Þetta er þrír!“ Pabbi: hmmm? A: „Snjókarl, gulrót og fata!“
-
Gert við bílinn
Það er fátt sem lýsir mér eins vel og það að mér líður eins og ég hafi gert við bílinn þegar ég fylli á rúðupissið
-
Háttatími
Pabbi: „Æ nei! Ég nenni ekki að labba upp!“ Albert: *ýtir af öllu afli á rassinn á pabba meðan pabbi skríður á undan upp tröppur* P: *leysir óforvarandis vind* A: *hleypur mjög dramatískt burt eins langt og hann kemst* „Ó nei! Ég er að fjúka!!“