
Blog
-
Kosningar
Ance, sem fékk ríkisborgararétt síðasta sumar: „Eins gott að hafa valið einfalt þegar maður kýs í fyrsta skipti.“
Hún, á leiðinni út: „Bíddu, hvað á ég annars að kjósa?“ *glott*
Ég: „Það byrjar á Guð…“
-
Ís
Þegar gefa skal systrum ís getur vog sem vigtar upp á gramm afstýrt hjaðningavígum

Hjaðningavígum afstýrt -
Upptekinn
Úti að sinna listinni, garðyrkju, vísindum og ýmsu fleiru

Skrifað á gangstétt 
Albert og mynd af Albert (myndin er nær) 
Litli garðyrkjumaðurinn 
🙁 
Sinnir nýjasta áhugamálinu – rannsóknum á niðurföllum 
Flytur erindi um niðurstöður rannsókna sinna 
Aparóla 
Vííííííí 
Grillar „pylsur“ fyrir pabba og Söndru -
Pabbi
Albert *á efri hæð*: „Pabbi!“
A: „Pabbiii!“
Pabbi: „Já?“
A: „Pabbiii!!!“
P: „Já?!?“
A: „Pabbiii!“
P: „JÁÁÁÁÁ!?!??“
A: „Pabbi, ég er ekki að tala við þig!“
P:
A: „Pabbiii!“
-
Hæ Sámur
Pabbi: „…já, Kátur er krókódíll, en mamma hans er fíll! Varstu búinn að taka eftir því?“
Telma: „Jahháts! Löngu búin að taka eftir því! Það er af því að hann er dáleiddur“
P:



Telma:
„Æ, ég ruglast alltaf á dáleiddur og ættleiddur“ -
Í vinnunni
Telma: *er í heimsókn í vinnunni hjá pabba* „Pabbi, hvað gerirðu eiginlega í vinnunni?“
Pabbi *tárast yfir því að einhver sýni vinnunni hans áhuga*: „Sko, ég skrifa leiðbeiningar með forritum. Eins og til dæmis ef þú ætlar að skrifa í tölvunni og prenta út, þá eru til leiðbeiningar sem segja ýttu hér og skrifaðu svona og ýttu svo hér og ýttu svo á OK og svo kemur blaðið úr prentaranum. Ég geri svoleiðis!“
T: „Mig langar svo í Nutella“
Tveimur tímum síðar….
Telma: *labbar framhjá þegar pabbi er að skoða tölvupóst* „Hvers konar leiðbeiningar eru þetta eiginlega?!?“
Pabbi:

T: „Ég hef sko aldrei séð svona leiðbeiningar…“



Telma: „Ég hef aldrei séð svona leiðbeiningar“ -
Búr
Þegar þú klúðrar skráningunni á sumarnámskeið og þarft að taka gríslingana með í vinnuna er gott að hafa aðgang að sterkbyggðu búri
/when you mess up signing the kids up for their summer course and need to bring the little rascals to work, it’s good to have access to a sturdy cage

Í búri



