siggimus vs the cows
-
Eins árs
Á afmælinu sínu fær voffi aðeins lengri göngutúr en venjulega /When it’s your birthday you get an extra long walk
-
Rakkafréttir
Húgó missir sko ekki af Rakkafréttum
-
Ekki hægt að hlusta
Var eitthvað að fikta í stillingunum á Spotify í gærkvöldi og slökkti m.a. á „Leyfa gróft efni“. Í morgun voru öll börnin gargandi: „Það er ekki hægt að hlusta á nein lög á Spotify!“ a) Er með fjölskylduáskrift og þetta hafði semsagt áhrif á okkur öll b) Börnin mín hlusta greinilega bara á lög með…
-
Knús
Albert reynir að sofna: „Pabbi nú langar mig í knús! Ég var að hugsa eitthvað ljótt…“ Pabbi: *knúsar* A: „Þegar ég hugsa eitthvað ljótt segi ég eitthvað fyndið … typpi, kúkur, rass!“
-
Búrfellsgjá
-
Pabbi les fyrir háttinn Albert: „Pabbi mig langar að vera með lokuð augu og sofa“
-
Gúglið
Albert: „Ég fór í tölvuna og opnaði gúglið og skrifaði Tix og hlustaði á Fallen angel!“ Pabbi: *impóneraður* A: „Svo skrifaði ég voices tusse og hlustaði á það“ P: *mindblown.gif* A: „Ég kann alveg að nota gúglið“
-
49
Shoutout á gaurinn sem keypti 49 einnota Bónus plastpoka af því það á að banna að selja þá
-
Albert, fimm ára, sem hefur séð hluta af EM með öðru auganu: „Eru fótboltamenn alltaf með tattú?“
-
Besta hugmynd í heimi: Pandaríki Norður-Ameríku
-
Hætta að hoppa
Albert: Hoppar í sófanum. Dettur niður á gólf. Grætur ógurlega Pabbi: „Við erum alltaf að segja þér að hætta að hoppa í sófanum. Hvenær ætlarðu eiginlega að hætta?“ A: „Ég skal segja ykkur, ég ætla að hætta eftir einn janúar!“ Uppfært 4. janúar:
-
Sumarlestraráskorun
Til að hvetja stelpurnar til að vera duglegar að lesa í sumar settum við í gang 500 mínútna sumarlestraráskorunina. Fyrir hverjar 100 mínútur sem þær lesa fá þær að velja verðlaun. Við gerðum ráð fyrir að það tæki þær megnið af sumrinu að ná 500 mínútum. Eftir eina viku: Fjölskyldan gistir saman í stofunni Ísbíltúr…