Albert: “Pabbi, átt þú smjattsmapp?“
Blog
-
Skip
Í göngutúr í fjöru
Pabbi: *bendir út á haf* „Sérðu stóra skipið sem er að sigla þarna! Sérðu hvað það fer hratt!“
Albert: „Er þetta sjóræningjaskip?“
-
Smakka
Mamma gerði hrísgrjónapönnsur og bauð börnunum að smakka
Telma, 9 ára:
„Smakka?! Hvað meinarðu?“Albert, 5 ára: „Að smakka þýðir að finna hvort eitthvað er gott á bragðið eða ekki!!!“
-
Sneikæjó
Albert, 2. ágúst, í síma frá Lettlandi: „Ertu búinn að setja inn sneikæjó?“
Pabbi: „Æi! Gleymdi því!“
Albert, 26. ágúst, kominn heim aftur, alveg að fara að bursta tennurnar: „Manstu þegar ég spurði ertu búinn að setja inn sneikæjó? og þú sagðir „Gleymdi því!“ … Það á að segja ÉG gleymdi því!“
-
Búðu til nýja íþróttagrein á Ólympíuleikunum með því að fjarlægja einn staf úr grein sem er þar:
- hólabretti
- jólabretti
- kotfimi
- köfubolti
- andbolti
- ýfingar
- jólreiðar
- strandbak
Búðu til nýja íþróttagrein á Ólympíuleikunum með því að fjarlægja einn staf úr grein sem er þar:
— siggi mús (@siggimus) July 25, 2021
-hólabretti
-kotfimi
-köfuboltiÞað komu líka tillögur frá öðrum





