Dagurinn eftir #hjólaðívinnuna er besti dagur ársins til að verða slæmur í hnénu
Blog
- 
		
		
Ástæða 364
Ástæða 364 fyrir því að losna við bumbuna mína: Þar sem ég hjólaði heimleiðis í gær tókst bumbunni minni að aflæsa símanum í vasanum, opna facebook, finna nokkurra ára gamla brúðkaupsmynd af fyrrum nágrönnum og tagga bæði mig og konuna mína á myndinni
(Algjör grundvallarmistök hjá bumbunni að tagga konuna mína líka. Ef Ance hefði ekki hringt öskrandi í mig hefði ég líklega ekki hugmynd um þetta prakkarastrik enn)
 - 
		
		
Við unað
Needs more ekki við unað

 - 
		
		
Knyttir
Uppáhalds knyttirnir mínir eru óknyttir
 - 
		
		
Fótboltamót
Fékk eldskírn mína sem fótboltapabbi í gær á móti Þróttar í Laugardal.
Krakkarnir eru í 6. flokki og á sínu fyrsta móti.
Uppáhalds augnablik: Þegar tók næstum mínútu að útskýra markspyrnu
 - 
		
		
Lemúr
Þetta barn er ekki hægt sko!
Albert segir lemúraði!
LEMÚRaði krakkar!
 - 
		
		
Öskjuhlíð

Víðmynd úr Öskjuhlíð  - 
		
		
Ég er ekki að segja að ég sé latur að þrífa bílinn, en…

 - 
		
		
Bíddu, hvað ætlarðu að gera við ömmu?

Kæfa ömmu  - 
		
		
Sokkar
Ég: *Kaupi tíu pör af sokkum*
Líka ég, viku síðar: *Leita í klukkutíma, finn ekki eitt samstætt par*
 - 
		
		
Klukk
Pabbi: *á snyrtingunni*
Albert, í gegnum læstar dyr: „Pabbi segja klukk!“
P: „Öööö … klukk?“
A: „Nei! Segja klukk klukk!!“
P: „Klukk klukk!!?“
A: „Meira klukk klukk, é get ekki opna!“
P: *aflæsir*
Lás: „Klukk!“
 - 
		
		
Klukkan
Albert, tæpra þriggja ára: „Ka klukkan?“
Pabbi: „Kortér yfir sjö“
A: „Ókei!“