Morgun
Sandra: *skoppar um íbúðina eins og súperbolti á sterum* „Ég er svo spennt!“
Pabbi: *verður örmagna af að horfa á orkuna sem fer til spillis* „Af hverju?“
S: *hoppar* „Það eru pylsur í matinn í kvöld!!!“ *hoppar*
stuff that’s rehashed from social media
Morgun
Sandra: *skoppar um íbúðina eins og súperbolti á sterum* „Ég er svo spennt!“
Pabbi: *verður örmagna af að horfa á orkuna sem fer til spillis* „Af hverju?“
S: *hoppar* „Það eru pylsur í matinn í kvöld!!!“ *hoppar*
Heilbrigður og saklaus maður fer í búð, en þar sem hann stendur með fulla kerru af eintómum nauðsynjum – röðin alveg að koma að honum! – svelgist honum á, fær langt hóstakast og er tættur í sundur af örvingluðum múg. Endir
Kannski ég verði bara heima í dag…

Telma gerði krefjandi þrautabók







Sandra ásamt nokkrum bekkjarfélögum. Það er augljóst hver er hvað

Hef ekki hugmynd hvað er í gangi hér, nema að myndin er geggjuð!

Því miður er ekki búið að skrifa þessa bók ennþá, en kápan lofar endalaust góðu

Af og til gleymir maður því í augnablik að stelpurnar reyna að myrða hvor aðra nokkrum sinnum á dag ![]()
![]()
![]()

Heimakennari: „Jæja ástin mín, látum okkur sjá! Verkefni dagsins er … að skrifa um skemmtilegan dag!“
Barn:
„Ég skil ekki..? Hvað er það?“
Fór í gallabuxur og sokka til að fara í búð fyrir pabba gamla.
Sokka! Leið eins og ég ætti að gifta mig
Nóg til af þurrgeri í Krónunni svo ég tók nokkur bréf til öryggis.
Ég: *bíbba eitt bréf, hendi á pokasvæði*
Sjálfsafgreiðslukassi:
Ég:
Sak:
Ég:
Sak:
Ég:
Sak:
Ég: *tek þurrger af pokasvæði, hendi með látum á pokasvæði*
Sak: „Skannaðu strikamerki eða leitaðu að vöru“
*læti á heimilinu*
Albert: *setur í brýrnar, biður um blað, teiknar á það og hleypur svo um og sýnir öllum* „Hérna stendur Bannað að tala!!“

„Úps pabbi!“

Telma:
„Það eina sem Albert horfir á er Hvolpasveit!“
Albert: „Nei! Ég horfi líka Po patról! Og Mætí pöps!“
(Mætí pöps eru semsagt þættir / bíómynd þar sem Hvolpasveitin er með ofurkrafta: Mighty Pups)