Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Það verður að viðurkennast að mér gengur hreint bölvanlega að muna að Svasíland heitir núna Esvatíní og Svaslendingar Esvatínímenn

  • Ýtti á rauða

    Mamma: „Ég finn ekki símann, geturðu hringt í hann?“

    Pabbi: *hringir*

    M: *finnur síma, setur í vasann og fer*

    Albert: *dæsir, lítur dapur á pabba með djúpa samúð í augum* „Hún ýtti á rauða“ ??


    (hjá ungum mönnum sem vita ekkert skemmtilegra en síma, og vilja helst eyða deginum í að hringja til skiptis í fjölskyldumeðlimi (og afa!) er ekki til stærri glæpur en að „ýta á rauða“ (skella á án þess að svara))

  • Minning

    Nýbyrjaður í markaðsdeild fyrirtækis. Fékk bréf frá frkvstj. til yfirlestrar. Lagaði innsláttarvillur — og tvö bil eftir punkta — sendi til baka. Eftir tvær mínútur hringir borðsíminn eins og erindið sé áríðandi.

    Frkvstj, hvass: „Við skulum hafa það á hreinu góði minn að ég er yfir-prófarkalesari fyrirtækisins !“ „Svona eru bara reglurnar !“ bætti hann við, „Það eiga að vera tvö bil á eftir punkti !“

    Skömmu seinna sagðist hann vilja hafa bil fyrir framan spurninga- og upphrópunarmerki: „Mér finnst það fallegra þannig.“ Bætti svo við: „Spurninga- og upphrópunarmerkið er auðvitað ekki bara fyrir síðasta orðið í setningunni, heldur alla setninguna !?!“

    Hann kunni ekki að meta durg, svo ég spurði aldrei hvort punktar og kommur væru „bara fyrir síðasta orðið í setningunni.“

    Óforbetranlegur besserwisser. Sem þýðir að þessa dagana situr hann, skrifar lesendabréf í Moggann og þrætir við tölvuna: „Heyrðu góða ! ÉG er yfir-prófarkalesari á þessu heimili ! Þú segir mér ekki fyrir verkum !“


  • Merktur

    Siggi mús (merktur)
    Siggi mús (merktur)

    Börnunum fannst ástæða til að merkja gamla


    Ástkær eiginkonan: „Hérna, þú hefur yngst um tíu ár…“

    Ég: *skoða* „Ööööö, síðan hvenær er kveikt á þessum bjútífílter“ *roðna oní rass*

    Öll fjölskyldan: *dansar um og syngur hástöfum*: „PABBI VAR MEÐ BJÚTÍFÍLTER!! PABBI VAR MEÐ BJÚTÍFÍLTER!!“

  • Elsa

    Dóttir: „Ef ég héti Elsa myndi ég sko örugglega elska Frozen!“

    Pabbi: „Veistu, ef þú hétir Elsa myndirðu sko örugglega ELSA Frozen, ha?!“ *bókstaflega deyr úr hlátri*

    Allir viðstaddir: *DÆS*

  • Samkomubann

    Ég er ekki að segja að það gangi illa hjá okkur í samkomubanni, en í gær lék Albert sér í fjóra tíma með dósaopnara

  • Páskaegg

    Frændi minn faldi einu sinni páskaegg fyrir kærustuna áður en hann fór í vinnuna. Hún leitaði, en fann ekki eggið áður en hún þurfti að fara í vinnuna.

    Fann eggið loksins seinnipartinn.

    Í gasgrilli á yfirbyggðum svölum sem sneru í hásuður í glampandi sól

  • Lesa bók?

    Albert: „Pabbi!“

    Pabbi: *opnar augun og sér að Albert stendur við rúmið. Býður honum að koma uppí*

    A: „Pabbi, viltu lesa bók fyrir mig?“

    P: *lítur á klukkuna — hálf fimm* „Ööööö, ekki núna ástin mín, það er nótt. Núna þarf að lúlla meira“

    A: „Ókei!“ *fer aftur inn í herbergi til sín og sést ekki aftur fyrr en kl. 7*

  • Bannað

    Albert: „Hérna stendur bannað að henda ruslið í götunni“

  • Eppúl

    Albert: „Dedí, æ vont eppúl!“

    Pabbi: „Dú jú vont vonn or tú eppúl?“

    A: „Æ teik vonn eppúl“

    P: „OK, æ vil giv jú vonn eppúl! Telma, dú jú olsó vont eppúl?“

    Telma: „???“

  • Hæ Sámur

    Þegar þú þarft að útskýra fyrir eiginkonunni að þú sért að fylgja Hæ Sámi á fb 🙂

  • Spennt

    Morgun

    Sandra: *skoppar um íbúðina eins og súperbolti á sterum* „Ég er svo spennt!“

    Pabbi: *verður örmagna af að horfa á orkuna sem fer til spillis* „Af hverju?“

    S: *hoppar* „Það eru pylsur í matinn í kvöld!!!“ *hoppar*