Hitastig: *fer yfir 5 gráður*
Við: „SUUUUUUMMAAAAAAARRRRRR!“




stuff that’s rehashed from social media
Hitastig: *fer yfir 5 gráður*
Við: „SUUUUUUMMAAAAAAARRRRRR!“
Í samkomubanni hafa börnin m.a.:
Kitluvélin í aksjón
Ég vil biðja þau ykkar sem fengu ekkert snapp frá Albert í kvöld afsökunar. Það er ekki víst að hann meini neitt með þessu, að hann vilji skilja þig útundan. Hann er enn að læra á Snapchat, og kann ekki alla stafina, svo það er alveg inni í myndinni að honum hafi barasta yfirsést nafnið þitt
Annars er gott fyrir mig að vita hvert ég get leitað ef mér dytti í hug að gera svona snapp eins og unga fólkið
Tæpra fjögurra vetra pjakkur (sem er búinn að horfa aðeins of mikið á jútjúb) leikur sér
„Jú vont nudd? Jú giv pjening? Hér is pjening. Fein kjú verrímæts“
„Hæ, hvad jú dúing? -Æm skelletonn – Jú skelletonn? -Jess æm. -Gúdd næn … tsjúgg!“
„Tojlet! Tojlet! Tojlet! Vú hú!! Vodd jú dúing hér tojlet? … Þetta er sjovab okkar. Ó mæ gúdneeee“
Albert: *sprautar vatni framan í lítinn dótakall*
Lítill dótakall: „Mæ æs! Mæ æs!!“
Albert uppgötvaði um helgina hvernig á að skipta um myndirnar sem birtast af okkur fjölskyldunni í Netflix appinu
Nú eru liðnir þrír dagar og honum þykir þetta ennþá töluvert meira spennandi en að horfa á eitthvað
„Þau eru bara allan tímann að reyna að byrja saman og hætta saman!“
Sandra, tíu ára, hefur uppgötvað Friends og er búin að horfa á 27 þætti: „Af hverju heitir þetta ekki bara Byrja saman og hætta saman?“ *heldur áfram að horfa*
Kom að henni að horfa og hún lagði höndina yfir spjaldtölvuna í ofboði þegar Ross og Rachel fóru að „kela“
Í dag lærðu börnin mín að þolinmæði þrautir vinnur allar.
Það getur tekið Tannálfinn 2-3 nætur að gera sitt, en hann skilar sér á endanum
Hef annars heyrt dæmi þess að Tannálfurinn hafi skilið eftir skuldaviðurkenningu.
Og miða um að ákveðin upphæð verði millifærð á bankareikning barnsins
Ég geri pizzu: Hmmm, þetta er of lítið af osti, best að setja oooooggulítið meiri ost!
Allir: *pota í* „Hvað segirðu, er ostur í matinn aftur?“
Pabbi: *í eldhúsinu að bardúsa*
Úr stofunni heyrist: „Sviss svass sviss!“
P: *kíkir fram*
Albert: *liggur á bakinu og gerir engil í stórri hrúgu af púslum* „Sviss svass sviss!“
(sviss svass sviss er hljóðið sem heyrist í rúðuþurrkunum í laginu Hjólin á strætó)
Albert: „Pabbi, koma hlaupa gera klukk!?“
Pabbi: „Ööööö .. ok, förum í eltingaleik“
*þrjár mínútur*
P: *liggjandi á gólfinu í andnauð* „Get … ekki … meira…“
A: „En akkuru?“
Ég verð að segja að mér finnst það nú ekki mjög traustvekjandi að sjá auglýsingu fyrir heita potta og það er enginn sem segir bæng!
Ég á enga mynd af mér með Vigdísi, en þegar Ólafur Ragnar kom í opinbera heimsókn í Gerðuberg var litli frændi minn þar og reyndi að betla af honum pening fyrir nammi