Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Hval

    Pabbi: „…gott er!“

    Albert: „Ég segi líka gott er“

    P: ?

    A: „Ég segi hval. Ekki þú?“

    P: „Neibbsí pepsí“

    A: „Segðu hval!“

    P: „Hval“

    A: „Jú! Þú segir líka hval!“

  • Albett: *klárar morgunmat* „Ég ætla að vaska upp!“

    Pabbi: „Frábært!“

    Líka pabbi: *hleypur og bjargar uppvaski gærkvöldsins frá því að vera „vaskað upp“ aftur*

  • Ég er ekki að segja að mér sé farið að leiðast eftir tvær vikur einn heima með öll börnin, en vissuð þið að það er til púsluforrit í Windows og það er hægt að velja að púsla 600 púsla púsl?

  • Pabbi: „…ég fer niður og set grautinn þinn á disk“

    Albert: „Disk? Pabbi, það á að segja skál!“

  • Þenx

    Telma (8): „Pabbi, hvernig skrifar maður þenx?“

    Pabbi: *lítur upp, opnar munninn…*

    Albert, nýorðinn fjögurra ára: „i eff i ú!“

  • Þegar þú fyrir tilviljun rekur augun í að þú ert búinn að ofgreiða kr. 68.760 fyrir internet síðustu mánuði og færð það leiðrétt

  • Albert: „Viltu koma út á leikvöllinn?“

    Pabbi: …

    A: „Viltu koma út á leikvöllinn, já eða nei?“

    P: „Nei, ekki núna“

    A: ? ?

    A: „Viltu koma út á leikvöllinn, já eða já?“

  • Út að borða

    með Albert

  • Maður, 170 ára: „Don’t be afraid to catch fish“ ? ? ? ? ?

    Dóttir, 10 ára: ? ? „Pabbi, hún syngur Don’t be afraid to catch FEELS! FEELS ER TILFINNINGAR“ ? ?

  • Lykill

    Oftar en ég kæri mig um að muna hef ég notað lykilinn til að opna bjór

  • Missa

    Albert: *hleypur um gargandi*

    A: *snarstoppar skyndilega og lítur áhyggjufullur niður*

    A: „Var ég að missa tönn?“

  • Heitur

    Albert: *opnar ísskápinn og starir inn í hann í viku*

    Pabbi: „Lokaðu ísskápnum, annars verður maturinn í ísskápnum heitur“

    A: „Heitur?“ ? ? „Þarf ekki að elda?“