Iðnaðarmaður, sitjandi klofvega á mæni hússins, kallar niður: „Sigurður, er bíllinn minn nokkuð fyrir þér?“
Pabbi: „Neinei!“
Albert: „Af hverju sagði hann Sigurður?“
P: „Af því ég heiti Sigurður“
A:
„HEITIRÐU EKKI PABBI?“
stuff that’s rehashed from social media
Iðnaðarmaður, sitjandi klofvega á mæni hússins, kallar niður: „Sigurður, er bíllinn minn nokkuð fyrir þér?“
Pabbi: „Neinei!“
Albert: „Af hverju sagði hann Sigurður?“
P: „Af því ég heiti Sigurður“
A:
„HEITIRÐU EKKI PABBI?“

Enskumælandi börn í heimsókn
Pabbi: „Stelpan er fjögurra ára eins og þú, en hún talar ensku eins og Peppa pig. Viltu prófa að tala við hana?“
Albert: *roðnar og hristir höfuðið*
… tvær mínútur…
A: *réttir Bersa* „This is Marshall!“
Dóttir: „…hvað heitir hann?“
Pabbi: „Frikki“
D: *hneyksluð* „HEITIR HANN FRIKKIN’?“
Albert situr inni í stofu að leika sér, aleinn:
„Æma bits! Æma boss!
Æma bits æma boss æma bits æma boss!“ ![]()
Fréttir: „… með áherslu á að kennsla raskist sem minnst“
Albert: „Rass kysst!“
*flissar í 10 mínútur*
Starfsmaður á auglýsingastofu: „…og hvað viltu auglýsa?“
Auglýsandi: „Nám“
Sáa: „Ok. Nám í hverju?“
A: „Vel skipulagt nám!“
Sáa: „En hvað?“
A: „Skemmtilegt nám!“
Sáa: „En hvað lærirðu?“
A: „Hentugt nám!“
Sáa: „En hvað kennið þið?“
A: „Allt í fjarnámi!“
Sáa: …
A: „Lögfræðingur!“

Á leikvelli með fjögurra ára pjakk. Taktföst tónlist í fjarska.
Albert: „Eridda begæ?“
Pabbi: „Begæ? Ég veit ekki hvað það er?“
P:
![]()
P:
„Me… meinarðu Bad guy?“



„Öllum umsækjendum verður svarað þegar gengið hefur verið frá ráðningu.“
…með smáauglýsingu.

Þegar sófinn er upptekinn og pabbi þarf að sitja á gólfinu

Pabbi: „Ég er í sjokki!“
Albert: „Ég er í sokki!“
P: „Nei, þú ert einmitt ekki í sokki! Þú ert ekki búinn að fara í einn einasta sokk í allan dag!“