Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
Fugue / Trampoline sur Metamorphosis II
Yoann Bourgeois – Fugue / Trampoline sur Metamorphosis II -
Heimspekingurinn sonur minn: „Pabbi, af hverju Karíus og Baktus eiga engan heimili?“
-
Pikknikk á palli
Albert býður í pikknikk úti á palli. Kemur svo út með „vatn og samlokur“
Ekki að ég vilji vera að kvarta, en ef einhver beindi byssu að mér myndi ég kannski byrja á að nefna að brúsinn er tómur og samlokan tómt, gaddfreðið brauð
Pikknikk á palli -
Albert er greinilega staddur í æsispennandi þætti af Hvolpasveit, því úr stofunni heyrast þessar samræður:
„Æma tsjeis isona keis!“
„Feinkjú tsjeis!“
„Jú welkom!“
-
Albert: „Þegar é er búinn missa eina tönn og setja undir kodda minn og fá pening þá get ég farið með pening í vinnuna og kaupa eitthvað!“
-
Dóttir: „Hvernig skrifar maður rong?“
Pabbi: „tvöfaltvaff, err, o, enn, gje“
Albert: „…ufsilon!“ -
Albert: „Pabbi, sjáðu hvað ég var að telja: Einn, tveir, frír, fjórir, fimm, sex, sjö, átta!“
Pabbi: „Já, en þetta er alveg rétt!?“
A:
„En er ekki neitt fimmtán?!?“
-
Pabbi: *les fyrir Albert og breiðir svo yfir hann* „Góða nótt!“
Albert: *veltir af sér sænginni* „Ég vil ekki gatsæng! Ég vil réttsæng!“
P: *
déjà vu
* „Ööööö, þú getur sko lagað sængina sjálfur!“
A: „Pabbi, ég vil ekki heyra svona tal!“
-
Hvað er í gangi!
Morgun. Pabbi og Albert niðri. Borða hafragraut
Stelpurnar uppi. Læti.
A: *leggur frá sér skeiðina* „Ég ætla upp að segja hvað er í gangi!“
A: *plomp plomp plomp plomp* „HVAÐ. ER. Í. GANGI?“
-
Pabbi reynir að fá Albert til að klæða sig fyrir leikskólann.
Albert: „Ég kann ekki!“
Pabbi: *potar í augað eins og kjáni. Setur sokkinn á eyrað á honum*
A: „Pabbi af hverju ertu klaufi og veist ekki hvar sokkana eiga að fara?“
-
Af og til þarf að minna Albert á að horfa ekki á ljót vídeó, t.d. þar sem er verið að keyra yfir hluti
Albert: *sýnir* „Pabbi, er þetta ljótt?“
Pabbi: „Nei, ég held ekki“
A: „En ef maður ýta á sturta þá er ekki lengur til kötturinn!“
Kisumyndband á youtube -
Iðnaðarmaður, sitjandi klofvega á mæni hússins, kallar niður: „Sigurður, er bíllinn minn nokkuð fyrir þér?“
Pabbi: „Neinei!“
Albert: „Af hverju sagði hann Sigurður?“
P: „Af því ég heiti Sigurður“
A:
„HEITIRÐU EKKI PABBI?“