Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Húgó: *fúlsar við folaldagúllasi sem keypt var á síðasta séns í Krónunni og horfir á mig eins og ég hafi framið stórkostleg svik*

    Líka Húgó: *étur hundaskít*

  • Minning

    Heimasíminn hringdi fyrir milljón árum.

    Rödd: „Er Eiríkur við?“

    Ég, prakkari: „Nei, hann er úti í fjósi!“

    R, hikar ekki augnablik: „Já?“

    É: „Já, hann er að mjólka kúna“ *fliss*

    R: „Veistu hvenær hann kemur aftur?“

    É: *gefst upp. á öllu*

  • minning

    Heimasíminn hringdi fyrir milljón árum:

    Rödd, á ensku: „Er Christian við?“

    Ég: „Neee, enginn Christian hér“

    R: „Ertu viss?“

    É: „Öööö, jaaá … frekar?“

    R: „Er það ekki sonur þinn?“

    É: „Neee“

    R: „Hvað heitir þú?“

    É: „siggi mús“

    R: „Ekki Christian?“

    É: „Neibbs“

    R: „Hvaða númer er þetta?“

    É: *segi númer*

    R: „Það er númerið sem Christian gaf mér!!!!“

    É: „Nú?“

    R: „Af hverju lét hann mig fá þetta númer ef hann býr ekki þarna?“

    É: „Tjah, ég veit ekki hvað gengur á í hausnum á Christian…“

    R: „Hvar býrðu?“

    É: „Þorfinnsgötu bleble“

    R: „Já, hann býr einmitt í næsta húsi!“

    É: „Jahá!“

    R: „Já, þetta er beint á móti spítalanum!!“

    É: „Tja, ekki alveg beint…“

    R: „Jú, þetta er beint á móti spítalanum!! Þekkirðu ekki Christian?“

    É: „Nei, ekki frekar en rétt áðan“

    R: „Þekkirðu ekki nágranna þinn?“

    É: „Nei, ég þekki ekki nágranna minn“

    R: „En af hverju er Christian að láta mig fá númerið hjá nágranna sínum ef hann þekkir þig ekki?“

    É: „Kannski væri betra að spyrja Christian að því..?“

    R: „Heyrðu, ég prófa kannski að hringja í *segir símanúmerið mitt* og spyrja eftir Christian!“

    É: „Gerðu það endilega“

  • Að horfa á fjögurra ára dreng reyna að útskýra Among Us fyrir móður sinni er mjög góð skemmtun ? ?

  • Sandra, 10 ára: „Það er svo skrýtið að Bædenn sé allt í einu orðinn forseti! Ég er bara orðin svo vön að Trömp sé forseti sko“

  • Hver skrifaði aftur bókina Ísleif heiti ég, kölluð Sleif?

  • Albert: „Pabbi, þú púsla þetta!“

    Pabbi: *byrjar að púsla*

    A: *hverfur*

    P: ? *ætlar að hætta og fara í símann*

    P: „Gngh! Æ, ég verð enga stund að klára…“


    söksess!!

  • Alveg eins

    Albert: *horfir á Peppa Pig á jútjúb*

    A: *ýtir á pásu* „Þetta er alveg eins oooooooooo…“ *hleypur upp tröppurnar* … nokkrar mínútur …

    A: *kemur aftur niður tröppurnar, móður og másandi* „…alveg eins og þetta!“ *sýnir*

  • Útaf sottlu

    Dead Kennedys – Nazi punks fuck off
  • Þegar þú ert upptekinn við að siða hundinn til og nærð ekki að grípa inn í þegar Albert krýpur niður til að sleikja drullupoll

    sbr
  • Bakarí

    Langar að opna ævintýralega gott bakarí:

    Brauðhetta og úlfurinn

  • Saksóknari: „Þú ert ákærður fyrir að stela tvö hundruð milljónum. Hverju svararðu?“

    Ég: „Sekur! hashtag BannaðAðDæma!“

    Dómari: *blaðar örvæntingarfullur í lögbókum* „Hver grefillinn! Hann náði okkur!“