Peak miðaldra ég: Fyrsta skipti sem ég heyrði Esjuna með Bríeti var þegar fjögurra ára sonur minn söng það nánast allt fyrir okkur
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
-
Esjan
Peak miðaldra ég: Fyrsta skipti sem ég heyrði Esjan með Bríeti var þegar fjögurra ára sonur minn söng það nánast allt fyrir okkur
-
Áramótaskaup
Börnin horfa á áramótaskaupið 2020 þriðja sinni, nú með gesti: Samkjafta ekki hvert ofan í annað: „Já, þetta! ÉG EEELSKA ÞETTA!!?!“ lýsa svo því sem er alveg að fara að gerast í smáatriðum. „Svo segir einhver „af hverju ertu að hreyfa munninn!“ *fliss*“
„SLEIKJA Á MÉR PÚNGINN!“
„Veistu hvað dikkpikk er?“
-
Kraftaverk
Kraftaverkin gerast í símabanni! Þeir sem lifa af að deyja úr leiðindum í nokkra klukkutíma geta aksjúallí fengið hugmynd!
Miracles do happen! (when smartphones are off limits)! Those who survive dying of boredom for a few hours can actually think of stuff to do!!
Sandra, 10 ára / years old
Telma, 8 ára / years old
Albert, 4 ára / years old
-
Dagalag
Ég heiti Helga á helgidögum
Dagalag – af Eniga Meniga
ég heiti Þura á þurrum dögum
ég heiti Sunna á sunnudögum
er þetta nóg
er núna komið nóg – og þó?Telma, fyrir háttinn: „Þetta er svo skrýtið, að heita Helga á helgidögum og Sunna á sunnudögum… sunnudagur er helgidagur!“
-
Ó, tyggjókall!
Ó, tyggjókall Besta atriðið úr vel lukkuðu Krakkaskaupi 2020
-
Flottasta bolinn
Fullorðnir eru voða uppteknir í eldhúsinu og stóra stundin að renna upp
Pabbi: *kíkir fram og sér að sonurinn er í buxum, sokkum og skítugum bol* „Albert, geturðu farið sjálfur upp og fundið flottasta bolinn og klætt þig í hann?“
Albert, uppi: „Þetta eru sko flottustu nærbuxurnar mínar!“
Pa: Hmm?
Albert kemur svo niður, í hvítum, einlitum hlírabol og bleikum boxer naríum sem hann erfði frá systur sinni, og engu öðru*
-
Íslenskur
Messenger spjall: „Er hundurinn ykkar laus hér fyrir utan?“
Ég: „Nei, hann sefur hér fyrir framan mig“
Ms: „Ó, ég hélt að þið væruð með eina íslenska hundinn í hverfinu“
Ég: „Neinei, það eru tveir í nr 30 og tveir í nr 94, og svo er…“
Það fyndna er að fyrir einu og hálfu ári vissi ég bara að það væri mjög mikið af vúffum í hverfinu
-
Heitt
Í gær keypti ég nýjan hraðsuðuketil.
Í dag brenndi ég mig á kaffinu.
Ég dreg þá einu ályktun sem hægt er að draga: Nýi ketillinn hitar vatnið miklu meira en sá gamli.
-
Skref
Svona 30% af skrefunum sem ég tek þegar ég fer út með hundinn er til að snúa við og þræða í kringum tré og ljósastaura
-
Albert, standandi yfir stórri hrúgu af legókubbum: „Það var ekki ég sem skemmdi turninn, það var fóturinn minn!!“
-
Ég sé að Albert var í tölvunni í dag að skrifa. Hvað ætli hann hafi… *setur upp gleraugun*
PRUMPA