Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Nei

    Krakkarnir finna Áttuna og Nei nei aftur eftir langa og kærkomna hvíld

    Albert: „Akkuru erún alltaf að segja nei?“

  • Pabbi: „Ertu að lesa þessa bók? Er hún skemmtileg?“

    Telma: „Já, mjög skemmtileg!“

    P: „Um hvað er hún?“

    P, 25 mínútum síðar:

  • Ef þér líður einhvern tíma illa yfir frammistöðu þinni í eldhúsinu máttu vita að til er fólk sem hefur klúðrað pakkasósu þannig að hún varð kekkjótt

    (Við munum ekki nefna þetta fólk á nafn, til þess skammast ég mín allt of mikið)

  • Mjö gamall

    Albert: „Húgó er orðinn mjö gamall!“ *bendir á tæplega hálfs árs hvolp*

    Pabbi: „Nú?“

    A: „Sjáðu, hann er kominn með hvít hár!“ *bendir*

    …wait for it…

    A: „…alveg eins og þú!“


    Albert: “Hugo is getting very old!” *points to puppy, almost six months old*

    Dad: “Oh?”

    A: “See! He has white hair” *points*

    …wait for it…

    A: “…just like you!”

  • Listinn

    ? Ég man nú ekki eftir að hafa skrifað þetta, en fyrst það er komið á listann verður ekki aftur snúið ????

  • Djöflasýra

    Bíddu er þessi djöflasýra búin að vera í gangi í fimmtíu fokkings ár?!?!

  • Aftur

    Krakkarnir leika með krossorðaspilið

    Albert: *rótar í stöfunum* „Hvar er þoddn?“

    Pabbi: „Þorn? Hvað ætlarðu að skrifa?“

    A: „Aftur“

    P: ?

    A:

  • Þumlar

    Systir mín verður að enda á þumli á Messenger.

    Ef ég svara þumlinum hennar með þumli kemur annar þumall á minn þumal.

    Sé þetta hópspjall og einhver annar gerir þumal eftir það kemur einn enn

  • Ormar Þormar

    Tæknilega væri semsagt hægt að heita Ormar Þormar

  • Pabbi: *knúsar* „Góða nótt, ástin mín“

    Telma: „Hvað langar þig í mest af öllu í heiminum?“

    P: *hugsar* „Að komast aftur í vinnuna og hitta fólk“

    T: „Ef þú gefur mér hest geturðu það!“

  • Bandaríkin voru feit pæling sem gekk ekki upp

  • Mjólk?

    Ég drekk eiginlega aldrei mjólk, en af og til þarf ég að tékka hvort mjólk er orðin vafasöm, smakka og er bara, hmmm, jááá, er mjólk svona á bragðið..?