Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Við horfum á Our Planet í dýrðlegu 4K

    Pabbi fer að velta fyrir sér tönn náhvala, hvort þeir festist ekki stundum óvart.

    Börnin: „Já, þeir festast stundum í ís…“

    Pabbi: „Lærðuð þið um náhvali í skólanum?“

    Börn: „Nei, í Hvolpasveit!“

  • Illt

    Sandra, 10 ára, kemur heim úr skólanum: „Pabbi mér er illt!“

    Pabbi: „Æ, ertu veik?“

    S: „Við vorum í kynfræðslu í dag“

  • Góðu fréttirnar: Albert missti fyrstu  tönnina! ??

    Slæmu fréttirnar: Það gerðist í leikskólanum og tönnin finnst hvergi ?

    Good news: Albert lost his first tooth today ??

    Bad news: It happened in the kindergarten, and no one has seen the tooth since ?

  • Omaþingin

    Börnin skiptast á að velja lag í spjaldtölvunni

    Fjögurra ára drengur: „Hvernig skrifar maður omaþingin?“

    Fimm mínútum af spurningum og vangaveltum síðar:

    omaþingin
  • Spáið í því, það er stórt H á Grænlandi og stórt L á Noregi og þess vegna er búið að vera rok hér í heila fokkings viku

  • Dýralíf

    Í næsta nágrenni við vinnuna er fjölbreytt dýralíf, sem sjá má í sporum í snjónum. T.d.

    Krummar

    Kanínur

    Voffar

    Ekki krummar, en samt fuglar

    Mýs

  • Albert og Embla

    Albert er búinn að uppgötva Emblu. Sest af og til niður og spyr hana einhvers eða bara spjallar…

  • Ungviðið horfir á Stundina okkar

  • Viltu giska?

    Albert: „Veistu hver átti afmæli í dag?“

    Pabbi: „Nei, hver?“

    A: „Viltu giska? Það byrjar á Elísabe…“

  • Hlaðvarp

    Var að fá tips um hlaðvarp og bætti nýjasta þættinum í biðröðina … það er númer 25 í röðinni. Ég þarf semsagt að hlusta í rúma 30 klukkutíma áður en kemur að því.

    Ég mun koma gersamlega af fjöllum þegar þátturinn byrjar


    Það er frábært að hafa ekki þurft að fara í vinnuna í vetur, en það hefur af mér megnið af hlaðvarpstímanum

  • Vinna?

    Ósvinna er betri en engin vinna?

  • Lestarkeppni grunnskólanna?