Góðan daginn, ég ætla að leigja hjá þér eina mottu í mars

stuff that’s rehashed from social media
Góðan daginn, ég ætla að leigja hjá þér eina mottu í mars
Hvern tölum við við um að gera rannsókn á því þegar 370 þúsund manns fá taugaáfall á sama klukkutíma?
Hvern tölum við við um að gera rannsókn á því þegar 370 þúsund manns fá taugaáfall á sama klukkutíma?
— siggi mús (@siggimus) February 9, 2021
Some typos are better than others
Sumar innsláttarvillur eru óneitanlega skemmtilegri en aðrar
Pabbi: „Er eitthvað sem þú vilt að ég tali um við kennarann þinn? Foreldraviðtalið er í dag.“
Telma: „Neeeee … eða jú! Ég elska hesta!“
Ég skilaði þessu samviskusamlega til kennarans, sem skellilhló og sagði „…ég veit!“
Albert: „Hvað í ósköpununum!“ *bendir hneykslaður á ökklann á sér* „Ég er alltaf að fá sár!“
Pabbi reynir að hjálpa Albert að sofa alla nóttina í sínu rúmi: „Sko, skrýmsli eru ekki til í alvörunni — bara í æpaddnum og sjónvarpinu. Stundum sér maður þau í draumi, en þau eru bara til í þykjó!“
Pj: „En löggur? Eru löggur bara til í þykjó?“
Pabbi: „…en þetta verður ekki auðvelt!“
Telma: „Já, ég þarf bara að bíta í öxlina!“ *beygir höfuðið og reynir að narta í öxlina á sér*
Ég var að setja kaffi í pressukönnuna þegar Ance kom og fór að tala við mig. Ég ruglaðist og þurfti að byrja aftur að telja og nú er hún að hlæja að mér
Pabbi: „Ég ætla út með Húgó. Er allt í lagi að þú sért einn niðri? Ef þú þarft hjálp við eitthvað geturðu bara náð í mömmu uppi“
Albert, fjögurra ára: „Ég geri bara sjálfur“
Albert, fjögurra ára: *bendir* „Hvað er þetta?“
Pabbi: „Stykkishólmur“
A: ? „Hvar er Afríka?“
Albert: „Pabbi, má ég fara æpadd?“
Pabbi: „Já, þú mátt vera í æpadd í þrjátíu mínútur! Ég stilli klukkuna og þú hættir þegar kemur píp, ok?“
A: „Tíminn byrjar núna?“
Pa: „Já“
A: „Ok, ekki trufla mik!“
Mætti í vinnuna í fyrsta sinn síðan 15. september og það var svo gott og gaman að ég gleymdi að fara heim