…og fjórum árum síðar er hann byrjaður að æfa ballett
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
Ballett
Smelltu til að sjá myndina -
18. júlí
Albert: „Ég vildi að það væri 18. júlí“
Pabbi:
„Ha, nú af hverju?“
A: „Af því að þá sofum við einu sinni og svo er Húgó eins árs!“
Sko 18. júlí. Daginn áður en hvolpurinn verður ársgamall. Ekki 7 dögum seinna, sem er daginn áður en Albert sjálfur verður fimm ára…
-
Sæng
Albert: „Ég vil sofa með pabba sæng!“
Mamma: „Já en þá er pabbi ekki með neina sæng?“
A: „Hann má fá mína!“
Sængasamanburður -
Nýtt orð
Lærði nýtt orð
hundsbelgjaglás -
Vináttumerki
Pabbi: „Nei sko, fékkstu verðlaun?“
Albert: „Þetta er vináttumerki! Við vorum að æfa okkur í að vera vinir og tala um hverju við erum góð í!“
P: „Og í hverju ert þú góður?“
A: „Að hoppa! Og standa á einum fót!“
Vináttumerki sem Albert fékk í leikskólanum -
Helvíti er…
Arlanda flugvöllur. Ég er þar með öll börnin og það eru tveir tímar í flug. Að eilífu.
-
Helvíti
Ég er úrvinda á Arlanda flugvelli með öll börnin og það eru alltaf tveir tímar í flug
-
Tilfinningar
Albert: Öskurgrenjar yfir grimmilegum örlögum lítils flamingóunga í sjónvarpinu.
Líka Albert: Blikkar ekki meðan hann hleypur um allt í Among Us og afhausar þrjá í beit.
Líka líka Albert: Getur ekki sofnað yfir áhyggjum af vesalings Bertu sem þarf að eyða nóttinni alein á neðri hæðinni
Berta -
Krossfiskar
Krossfiskar sem urðu á vegi okkar í dag
-
Hræddur hákarl
Börnin horfa á Zig & Sharko
Pjakkur: „Af hverju er hákarl hræddur við hákarl!??!“ *hneysklaður* „Þá á hann að vera hræddur við sjálfan sig!?!!?“
-
Helgufoss
Sandra hjálpar Albert Húgó skoðar Helgufoss Sandra í brekku Húgó í brekku Telma og Húgó Sandra, Albert og siggimus Albert og Sandra príla Lítil planta Á heimleið, Telma, Albert, siggimus og Húgó -
Málshættir
Andvökur augum spilla Mamma: „Hnuss! Við getum gert betur en þetta!“
Sjaldan krúmeitinn drepur impostorinn
-mamma
Betra er yndi en auður Betri er Bríet en Auður
-pabbi
Ekki er pabbabrandari góður nema móðir segi
-mamma
Sultur gerir sætan mat Sultur gera ristað brauð betra
-Albert