Á erfitt með að halda mér vakandi enda klukkan langt gengin í ellefu á sunnudagskvöldi eftir villta helgi þar sem ég vakti fram á miðnætti að horfa á maraþon
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
-
Minning – Lyftan í Plavnieki
Fyrir mjöööög mörgum árum bjó ég í Riga, Lettlandi í nokkra mánuði.
M.a. bjó ég í hverfi sem heitir Plavnieki, í stórri blokk sem er sirkabát nákvæmlega eins og næstu 20 blokkir. Ég var á 7. hæð, svo það var ekki gaman þegar lyftan bilaði.
Þá sjaldan lyftan virkaði var bara hægt að ýta á einn hnapp í einu. Ef ég kom inn í lyftuna og ýtti á sjö, en svo kom einhver á eftir mér sem vildi fara á þriðju hæð, þurfti viðkomandi að gjöra svo vel að koma með mér upp á 7 og ýta þar á 3 eftir að ég var kominn út.
Þegar lyftan bilaði var bara að prísa sig sælan að þú hafir ekki verið inni í lyftunni þegar það gerðist og kjaga upp.
Ég kom nokkrum árum seinna í húsið og náði þessari mynd í lyftunni.
Lyfta í Plavnieki -
Neinei, bara hann Albert minn, fimm ára og átta daga gamall, búinn að læra að skrifa til að geta spjallað við pabba sinn frá útlöndum
Flinkur að skrifa -
Veistu nokkuð um einhvern sem tekur að sér að kenna ungum hundum að liggja?
Hundurinn kann ekki að liggja -
Jæja góði
43°C – ekki í forsælu -
Einmitt það sem vantaði kl 3.39 að nóttu til
Rafhlaða, reykskynjari
PS: Komst að því fyrir nokkrum vikum að það á sér eðlilega skýringu að reykskynjarar pípi frekar á nóttunni þegar rafhlaðan er að gefa sig!
Hitastig! Rafhlöður gefa frá sér minni orku með lækkandi hita, og það er yfirleitt kaldara að nóttu til.
-
Ég fékk kæsta skötu í gær, sem þýðir að í dag er aðfangadagur jóla.
Sorrý, ég sem ekki reglurnar
-
Hvað er þetta? Loftsteinn?
Hvað er þetta bjarta? -
Grindhvalavaða
Innst í Ísafirði
Vinsamlegast afsakið hljóðið 🙁
-
„Sumar“
Í fyrsta skipti frá því við fengum hann snéri Húgó við í innkeyrslunni. Hann þverneitaði að fara út í þetta veður.
EKKI EINU SINNI ÍSLENSKUR FJÁRHUNDUR SAMÞYKKIR ÞETTA „SUMAR“
-
Steinn
Eins árs og tveggja daga voffi gekk upp að Steini.
Kunni ekki vel við sig í 10 metra skyggni og urraði á óvættir sem birtust úr þokunni
Húgó, Stefán og Steinn á Esjunni -
Lettland?
Tvær stelpur spyrja eftir Telmu
Ég: „Nei, hún er ekki heima, og það er soldið langt þar til hún kemur“
Stelpa 1: „Æ já, ég var búinn að gleyma því, hún er í Lettlandi“
Stelpa 2: „Lettland? Hvað er það?“