Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Átján

    Pabbi: „Aldís frænka þín á afmæli í dag“

    Albert: „Hvað er hún gömul?“

    P: „Átján ára“

    A: „Vá! Hún má horfa á skviddgeim!“

  • Einar Ormur

    Ævintýri Einars Orms

    Svaðilfarir Einars Orms

    Einar Ormur í kröppum dansi

    Einar Ormur in the wild
  • Sýnist sem það hafi verið mjög vel til fundið að horfa ekki á handboltann.

    Það er ekki gefið að hjartað ráði við svona álag þegar maður er kominn á þennan aldur

  • Spjall

    Ég: *nývaknaður að klæða mig til að fara út með hundinn*

    Albert: „Bíddu pabbi!“ *kemur hlaupandi*

    A: *knúsar mig og kyssir* „Ég ætla að senda þér á eftir!“

    Á eftir:

  • Af því ég veit þið hafið verið að velta því fyrir ykkur, Hvolpasveit heitir Patrulla Canina á spænsku

  • Effingsson

    Við matarborðið

    Albert: „Effingsson!“

    Pabbi: „Ha?“

    A: „Effingsson!?!“

    Pa: „Effing-hvað?“ ?

    A:

  • Vegasalt

    Semsagt … vegasalt?

  • Pus

    Ég bý í húsi þar sem heyrist mjög vel þegar blæs að austan og þarf að sofa við lokaða glugga þegar pusar og verð að segja að mér finnst reglulega tillitssamt af stormunum að koma aðra hverja nótt svo ég geti notað hina nóttina til að sofa og anda

  • Herbie

    Hæ þú, hér er Herbie á hjólabretti

  • Ekki bófi

    Albert hleypti mér ekki út að labba með hundinn fyrr en ég var búinn að lofa lofa lofa að kalla strax á allar löggur sem ég sæi: „Ég er ekki bófi, þetta er bara hattur!“

  • Hálf milljón

    Ég setti mér háleitt markmið í desember: Hálf milljón skref í skrefakeppni. Það tókst og nú er ég stoltur og lúinn, búinn

    Nú er hafinn skrefanúar og ég er með eitt markmið: Missa streakið að ganga 10 þúsund skref á dag.

    Þökk sé veðrinu gæti það jafnvel náðst í dag

    Er að passa mig að enda ekki með áráttuhegðun